Tuttugu íslenskir landsliðskylfingar eru á meðal keppenda í Spring Junior Games móti Global Junior Golf í Portúgal. Mótið er það fyrra af tveimur í keppnisferð hópsins í Portúgal.
Gífurlegur fjöldi efnilegra íslenskra kylfinga er skráður í mótið, en ásamt íslenska landsliðshópnum eru aðrir tuttugu á meðal keppenda. Rúmlega helmingur keppenda eru því íslenskir, en hér að neðan má sjá hlutföll okkar kylfinga í mótinu.
| Karlar | Konur | |
| Íslenskir keppendur | 27 | 13 |
| Heildarfjöldi keppenda | 50 | 20 |
Spring Junior Games mótið er leikið á PGA Aroeira vellinum í Lissabon, en þar hafa meðal annars verið haldin mót á Evrópumótaröð karla og kvenna. Völlurinn er bæði langur og þröngur, en af öftustu teigum spilast hann 6367 metrar. Leiknir eru þrír hringir á þremur keppnisdögum í flokkum 23 ára og yngri, 18 ára og yngri og 14 ára og yngri.
Hér má fylgjast með stöðu mótsins

Seinna mót hópsins verður GJG Juniors International á Aroeira Pines Classic vellinum. Perla Sól Sigurbrandsdóttir er ríkjandi meistari kvenna í mótinu, en verður þó ekki á meðal keppenda í ár til að verja titil sinn.



