GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Efri röð frá vinstri: Skarphéðinn Egill Þórisson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Arnar Daði Svavarsson, Björn Breki Halldórsson, Elva María Jónsdóttir, Embla Hrönn Hallsdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir, Sara María Guðmundsdóttir, Eva Fanney Matthíasdóttir, Erna Steina Eysteinsdóttir, Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, Axel Bóasson Neðri röð frá vinstri: Kristján Karl Guðjónsson, Halldór Jóhannsson, Máni Freyr Vigfússon, Óliver Elí Björnsson, Arnar Freyr Viðarsson, Hjalti Kristján Hjaltason, Ágúst Már Þorvaldsson, Markús Marelsson, Gunnar Þór Heimisson. Á myndina vantar Birki Þór Baldursson
Auglýsing

Landsliðshópur GSÍ er þessa dagana staddur í keppnisferð rétt fyrir norðan Lissabon í Portúgal þar sem keppt er á tveimur mótum á Global Junior mótaröðinni. Hópurinn samanstendur af 21 landsliðskylfingi og tveimur þjálfurum, þeim Axel Bóassyni og Birki Þór Baldurssyni. 

Fyrra mótið fór fram á Praia D’El Rey golfvellinum og lauk í gær. Þátttakendur voru alls 100 og komu frá 18 löndum. Aðstæður voru krefjandi í mótinu og skor keppenda bar þess merki.  Bryndís Eva Ágústsdóttir náði besta árangri í stúlknaflokki er hún hafnaði í 5. sæti. Keppnin var afar jöfn og spennandi en hún hafði eins högga forystu fyrir lokahringinn. Bryndís lék á 77-76-79 höggum og var þrettán yfir pari í heildina. Gunnar Þór Heimisson og Óliver Elí Björnsson náðu besta árangri í piltaflokki en þeir voru samtals á níu höggum yfir pari og höfnuðu í 12. sæti.

Úrslit mótsins 

Seinna mótið fer fram á Royal Óbidos golfvellinum og hefst á morgun. Það verður spennandi að fylgjast með okkar flottu landsliðskylfingum. 

Rástímar

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ