Sjálfboðaliða- og leikkort GSÍ

Golfsamband Íslands gefur út tvær gerðir af kortum/afsláttum. Annars vegar sjálfboðaliðakort sem er ætlað sjálfboðaliðum í golfhreyfingunni og svo hins vegar leikkorti fyrir samstarfsaðila. Skoða reglugerð.

Allir korthafar nota GolfMore afsláttar appið.

 

SJÁLFBOÐALIÐAKORT

Sem skráður sjálfboðaliði í golfklúbbi fær viðkomandi úthlutað korti. Korthafi hefur heimild til að leika tvisvar sinnum ásamt gesti á golfvelli sem hefur aðild að GSÍ. Greiðir 2.000,- kr fyrir hvern hring.

LEIKKORT – 50% af hæsta vallargjaldi

Sem skráður samstarfsaðili GSÍ fær viðkomandi úthlutað leikkorti. Korthafi hefur heimild til að leika tvisvar sinnum ásamt gesti á golfvelli sem hefur aðild að GSÍ. Greiðir 50% af hæsta vallargjaldi fyrir hvern hring þó aldrei lægri en 2.000,- kr.

GolfMore_leidbeiningar

Kortið/afsláttinn má sá einn nota sem það er gefið út á, í samræmi við gildandi reglur. Framvísið persónuskilríkjum sé þess óskað. Gildir út árið 2022.

Við viljum vekja athygli á því að mikilvægt er að vel sé tekið á móti þeim kylfingum sem framvísa sjálfboðaliða- og leikkortum frá GSÍ og notkun þeirra sé nákvæmlega skráð.

Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ