Íslandsmót golfklúbba í aldursflokknum 14 ára og yngri fór fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði dagana 25.-27.júní. Keppt var í stúlkna – og piltaflokki.
Drengir 14 ára og yngri:
Alls mættu fjórtán lið til leiks.
Fyrsti hringur mótsins var 18 holu höggleikur. Úrslit hans voru notuð til að raða sveitunum niður í fjóra riðla. Sveitir GK 1 og GK 2 sigruðu höggleikinn, en sveit GKG var höggi á eftir þeim í þriðja sæti.
Í úrslitaleiknum mættust sveitir GKG 1 og GK 1. Sveit GKG 1 vann leikinn 2-1 og er Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar Íslandsmeistari golfklúbba í aldursflokknum. Sveit GK 1 endaði í öðru og sveit GM hafnaði í þriðja sæti.
Í sveit GKG voru:
- Bjartur Ægisson
- Emil Máni Lúðvíksson
- Eiríkur Bogi Karlsson
- Jón Reykdal Snorrason
- Matthías Jörvi Jensson
- Sveinbjörn Viktor Steingrímsson
- Liðsstjóri: Haukur Már Ólafsson


Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:
Smelltu hér fyrir stöðu í höggleik:

