GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba í aldursflokkum 16 ára og yngri fór fram á Strandarvelli á Hellu dagana 25.-27.júní.

Níu sveitir mættu til leiks í mótið.

Fyrsti hluti mótsins var 18 holu höggleikur. Úrslit hans voru notuð til að raða sveitunum niður í þrjá þriggja liða riðla. Sveit GKG lék best í höggleiknum, fjórum höggum betur en sveit GK, sem endaði í öðru.

Staðan eftir riðlakeppni

Sveitir GA og NK mættust í úrslitum mótsins. Sveitirnar sigruðu báða sína leiki í riðlakeppninni 2-1. Golfklúbbur Akureyrar sigraði úrslitaleikinn og eru Íslandsmeistarar golfklúbba í aldursflokknum. Sveit Nesklúbbsins 1 hafnaði í öðru sæti og sveit GKG endaði í því þriðja.

Í sveit GA voru:

  • Ágúst Már Þorvaldsson
  • Arnar Freyr Viðarsson
  • Egill Örn Jónsson
  • Patrekur Máni Ævarsson
  • Finnur Bessi Finnsson
  • Liðsstjóri: Heiðar Davíð Bragason
Sveit GA

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í holukeppninni:

Smelltu hér fyrir úrslit í höggleiknum:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ