Íslandsmót golfklúbba í aldursflokknum 14 ára og yngri fór fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði dagana 25.-27.júní. Keppt var í stúlkna – og piltaflokki.
Stúlkur 14 ára og yngri:
Alls mættu fimm sveitir til leiks í mótið.
Öll liðin léku einn leik innbyrðis og liðið með flesta vinninga í loks móts stóð uppi sem sigurvegari.
Sveit Nesklúbbsins endaði með 3.5 vinninga af 4 mögulegum, og er Íslandsmeistari golfklúbba í aldursflokknum. Golfklúbburinn Keilir endaði í öðru sæti með 3 vinninga, og Golfklúbbur Mosfellsbæjar í því þriðja með 2 vinninga.
Í sveit NK voru:
- Elísabet Þóra Ólafsdóttir
- Emma Daðadóttir
- Þórey Berta Arnarsdóttir
- Arnheiður Helga Hermannsdóttir
- Liðsstjóri: Ólafur Marel


Smelltu hér fyrir úrslit:

