Golfklúbburinn Keilir heldur Hvaleyrarbikarinn 2025 dagana 30. maí til 1. júní. Mótið er þriðja mótið á GSÍ mótaröðinni á þessu tímabili.
Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit.
Eftir Vormótin tvö, sem voru leikin á Hlíðavelli og Þorláksvelli, er komið að hinum árlega Hvaleyrarbikar. Mótið er haldið á Hvaleyrarvelli Golfklúbbsins Keilis. Mikið er undir, en stigin í mótinu eru tvöföld á við Vormótin. Mótið gæti einnig reynst góður undirbúningur fyrir Íslandsmótið í höggleik þar sem leikið verður á sama velli.
Fyrirkomulag mótsins er 54 holu höggleikur. Eftir 36 holu leik skal leikmönnum fækkað þannig að þau 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni.
96 kylfingar taka þátt í mótinu, sem er hámarksfjöldinn. Þónokkrir kylfingar eru á biðlista og verða klárir til þátttöku ef einhver skyldi forfallast.
Keppendalistinn í bæði karla- og kvennaflokki er sá sterkasti á tímabilinu hingað til.
Í karlaflokki má finna atvinnukylfingana Harald Franklín Magnús og Guðmund Ágúst Kristjánsson, fyrrum Íslandsmeistarana Axel Bóasson og Kristján Þór Einarsson, ásamt efsta manni stigalistans Tómasi Eiríkssyni Hjaltested.
Í karlaflokki eru 72 keppendur. Lægsta forgjöfin er +6.1 en sú hæsta er 1.7. 22 kylfingar eru með +2 eða lægra í forgjöf og má því búast við alvöru skori í mótinu.
Í kvennaflokki mæta báði sigurvegarar Vormótanna, Berglind Erla Baldursdóttir og Heiðrún Anna Hlynsdóttir til leiks. Þar að auki bætast við margir kylfingar af Unglingamótaröðinni sem ekki tóku þátt í Vormótunum. Ragnhildur Sigurðardóttir, margfaldur Íslandsmeistari í golfi, er einnig á meðal keppenda.
Í kvennaflokki eru 24 keppendur. Lægsta forgjöfin er +2.4 og sú hæsta er 5.5. Lægstu fimm forgjafirnar í kvennaflokki eru allar 0.0 eða lægra, og má því búast við hörkukeppni um helgina.
Bikarinn hannaður í Japan
Keppt er um Hvaleyrarbikarana eins og nafn mótsins gefur til kynna. Verðlaunagripurinn á sér nokkra sögu og óvenjulega. Er hann einn af elstu bikurunum í safninu hjá golfklúbbnum Keili. Var bikarinn gefinn af Toyota umboðinu árið 1979 eða tólf árum eftir að klúbburinn var stofnaður. Var keppt um bikarinn á opnu móti hjá Keili sem haldið var í nokkur ár.
Bikarinn er veglegur og fremur óvenjulegur í útliti. Var hann hannaður og sérsmíðaður í listagallerí í Japan á sínum tíma. Þegar stigamótinu Hvaleyrarbikarnum var komið á fót árið 2016 þurfti að búa til annað eintak enda keppt í tveimur flokkum í Hvaleyrarbikarnum. Var bikarinn sendur til Kína með það fyrir augum að búa til eftirlíkingu en Kínverjarnir sem ætluðu að taka verkið að sér treystu sér ekki til þess þegar á hólminn var komið.
Höfðu Keilismenn þá upp á listagalleríinu í Japan og var þar smíðaður annar bikar sem gefinn var af Icewear. Þá þurfti raunar einnig að gera lítillega við bikarinn sem hafði skemmst á heimleiðinni frá Japan. Bikarinn hefur því farið nokkrar ferðir á milli Íslands og Asíu.
Mikilvæg stig á stigalista GSÍ
Hvaleyrarbikarinn er þriðja mót ársins á GSÍ mótaröðinni. Hér má sjá stöðu á stigalistum karla og kvenna.