Nú styttist óðum í sumarið og kylfingar sem eru ekki komnir í golfklúbba eru eflaust að velta fyrir sér hvar sé hagkvæmast að gerast meðlimur í golfklúbbi. Þegar vefsíður golfklúbba er skoðaðar er hægt að finna fjölbreytt tilboð varðandi aðild að golfklúbbi. Golfklúbbur Brautarholts er með dýrustu félagsaðildina sem kostar 210.000 kr. en Golfklúbburinn Oddur fylgir þar fast á eftir með 195.000 kr.
Framboðið hefur aldrei verið meira af mismunandi fyrirkomulagi aðildar. Allt frá fjaraðild til fullrar aðildar með yfir tuttugu vinavallargolfklúbbum inniföldum. Þess má geta að félagsaðild er háð á hvaða aldursári kylfingar eru. Kylfingar þurfa því að skoða vel hvaða aðild hentar þeim best.
Lægstu félagsgjöld án takmarkana á fjölda golfhringja:
- 29.900 kr. Golfklúbburinn Geysir
- 44.900 kr. Golfklúbbur Grindavíkur
- 45.000 kr. Golfklúbbur Staðarsveitar
- 59.800 kr. Golfklúbbur Hellu
Lægstu félagsgjöld með takmarkaðri aðild:
- 9.900 kr. hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar. Innifalið er 1 golfhringur, enginn aðgangur að vinavöllum.
- 16.000 kr. hjá Golfklúbbnum Geysi. Innifalið eru 3 golfhringir.
- 44.900 kr. hjá Golfklúbbi Brautarholts. Innifalið eru 5 golfhringir á vellinum og aðgangur að vinavöllum.
- 45.000 kr. hjá Golfklúbbi Borgarness. innifalið eru 5 golfhringir á vellinum og aðgangur að vinavöllum.
Lægstu gjöld fjaraðildar (Enginn golfhringur er innifalinn)
- 14.000 kr. hjá Golfklúbbnum Dalbúa.
- 14.000 kr. hjá Golfklúbbi Úthlíðar.
- 15.900 kr. hjá Golfklúbbi Ásatúns.
Vinavellir
Fjöldi vinavalla sem eru innfaldir í félagsaðildinni teljast vera kaupauki fyrir kylfinga. Þegar rýnt er í vinavallarsamninga milli golfklúbba þá eru þeir að gefa allt að 50% afslátt af vallargjaldi hjá vinavelli.
Með fyrirvara um að allar upplýsingar um félagsgjöld hafi verið uppfærð og aðgengileg á vefsíðu golfklúbbsins. Ábendingar sendist á info@golf.is
Takmörkuð aðild: Félagsaðildin er takmörkuð við ákveðin fjölda hringja á golfvelli.
Aukaklúbbsaðild: Félagsmaður þarf að vera félagi í öðrum golfklúbbi til að kaupa aukaaðild.
*Fjaraðild: Eingöngu félagsaðild og enginn hringur innifalinn á golfvelli.

