Fyrsta mót LET Access mótaraðarinnar hófst í gær í Marokkó, en þar fer Madaëf Golfs Ladies Open mótið fram dagana 12.-14. apríl. Með mótinu hefst nýtt tímabil á þessari næst sterkustu mótaröð Evrópu, en leikið verður um alla heimsálfuna á næstu mánuðum.
Þrír íslenskir kylfingar eru skráðir til leiks í mótið: Hulda Clara Gestsdóttir, Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir.
Hulda Clara hóf sitt fyrsta mót á LET Access mótaröðinni af krafti. Hún lék gott golf á fyrsta hring og kom í hús á pari vallarins eða 72 höggum. Hulda fékk fjóra fugla, fjóra skolla og situr jöfn í ellefta sæti mótsins.

Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur ‘Ragga’ Kristinsdóttir koma inn í tímabilið með mikla reynslu og sjálfstraust eftir gott gengi á síðasta ári. Ragga endaði áttunda á stigalista mótaraðarinnar og Andrea endaði tólfta. Efstu sjö kylfingarnir í lok tímabils fá þátttökurétt á LET mótaröðinni, svo engu mátti muna að þær hefðu náð alla leið.
Ragga lék fyrsta hringinn á 77 höggum, fimm yfir pari vallarins og er jöfn í 50. sætinu. Hún fékk þrjá fugla á hringnum en tapaði átta höggum. Hún situr þó réttu megin við niðurskurðarlínuna, sem er sex högg yfir pari sem stendur.

Andrea lék á 79 höggum og er jöfn í 71. sæti mótsins. Hún sótti tvo fugla á seinni níu holunum en par 4 holurnar reyndust henni erfiðar.

