Unglingaeinvígið fór fram á Hlíðavelli þann 19. september síðastliðinn. Golfklúbbur Mosfellsbæjar hefur staðið fyrir mótinu frá árinu 2005 og var mótið í ár það tuttugasta og fyrsta í röðinni. Þrjátíu af fremstu afrekskylfingum landsins á aldrinum 13-18 ára fá boð um þátttöku.
Leikin var 10 manna forkeppni í hverjum aldursflokki með „shootout“ fyrirkomulagi þar sem sá kylfingur með hæsta skorið á hverri holu fellur úr keppni. Þrír kylfingar úr hverjum aldursflokki komast í lokaeinvígið, ásamt sigurvegara síðasta árs, Birni Breka Halldórssyni.

Í úrslitum voru 6 kylfingar úr GKG, 3 kylfingar úr GM og 1 úr GS.
Heimamaðurinn Hjalti Kristján Hjaltason stóð uppi sem sigurvegari eftir spennandi keppni en hann setti í frábæran fugl á lokaholunni fyrir utan flötina. Þetta er í annað sinn sem Hjalti vinnur mótið en hann sigraði einnig árið 2021. Óskum Hjalta til hamingju með árangurinn!
Hér má sjá úrslit mótsins:
1. sæti | Hjalti Kristján Hjaltason | GM |
2. sæti | Björn Breki Halldórsson | GKG |
3. sæti | Fjóla Margrét Viðarsdóttir | GS |
4. sæti | Eva Fanney Matthíasdóttir | GKG |
5. sæti | Elísabet Ólafsdóttir | GKG |
6. sæti | Embla Hrönn Hallsdóttir | GKG |
7. sæti | Gunnar Þór Heimisson | GKG |
8. sæti | Emil Darri Birgisson | GM |
9. sæti | Eiríka Malaika Stefánsdóttir | GM |
10. sæti | Emil Máni Lúðvíksson | GKG |
Sigurvegarar Unglingaeinvígisins frá upphafi:
2005 – Sveinn Ísleifsson, GKj
2006 – Guðni Fannar Carrico, GR
2007 – Andri Þór Björnsson, GR
2008 – Guðjón Ingi Kristjánsson, GKG
2009 – Andri Már Óskarsson, GHR
2010 – Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK
2011 – Ragnar Már Garðarson, GKG
2012 – Aron Snær Júlíusson, GKG
2013 – Ingvar Andri Magnússon, GR
2014 – Ingvar Andri Magnússon, GR
2015 – Björn Óskar Guðjónsson, GM
2016 – Henning Darri Þórðarson, GK
2017 – Ragnar Már Ríkarðsson, GM
2018 – Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
2019 – Tómas Eiríksson Hjaltested, GR
2020 – Björn Viktor Viktorsson, GL
2021 – Hjalti Kristján Hjaltason, GM
2022 – Veigar Heiðarsson, GA
2023 – Jóhann Frank Halldórsson, GR
2024 – Björn Breki Halldórsson, GKG
2025 – Hjalti Kristján Hjaltason, GM