Íslandsmótið í holukeppni 2025 í holukeppni fór fram dagana 20.-23. júní á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar.
Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Golfklúbbi Selfoss, er Íslandsmeistari í holukeppni kvenna 2025 – en hún sigraði Pamelu Ósk Hjaltadóttur, Golfklúbbi Mosfellsbæjar, í úrslitaleiknum. Þetta er þriðji sigur Heiðrúnar á tímabilinu, en hún hefur leikið frábært golf í sumar.
Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA, sigraði Ásdísi Rafnar Steingrímsdóttur, GR, í leiknum um þriðja sætið.

Lítið skildi Heiðrúnu og Pamelu að í leiknum. Skolli Pamelu á fyrstu kostaði hana holu, en flottur fugl á fjórðu jafnaði leikinn. Heiðrún fékk skolla á fimmtu holu, báðar fengu þær fugl á sjöttu, og Heiðrún jafnaði leikinn með frábæru pútti á sjöundu holu. Þær voru jafnar eftir níu holur, báðar á einum undir pari vallarins.
Leikurinn hélst jafn fram á 15. holu, og komst Heiðrún þá eina holu upp. Eftir það fékk Heiðrún tvo frábæra fugla í röð, sigraði holur 16 og 17, og tryggði sér titilinn.
Heiðrún Anna lék ekki í Vormóti GM, sem var fyrsta mót tímabilsins. Eftir það hefur hún leikið í öllum þremur mótum GSÍ mótaraðarinnar, og sigrað þau öll. Hún er með yfirburðastöðu á stigalista mótaraðarinnar og stefnir á fleiri titla á tímabilinu.

Leið Heiðrúnar að titlinum hófst í 36 holu höggleiknum á föstudaginn síðasta. Þar lék hún á 73 og 75 höggum, og varð önnur á deginum, sex höggum á eftir Pamelu.
í 16 manna úrslitunum mætti hún Berglindi Erlu, sem sigraði Vormót GM á sama velli í maí. Heiðrún lék fimm undir pari, var skollalaus og sigraði leikinn 5/3.

Í átta manna úrslitunum lék Heiðrún gegn Auði Bergrúnu, GM. Lítið skildi þær að allan tímann, og var Auður yfir meirihluta hringsins. Góður endasprettur Heiðrúnar skildi þær að, og hún sigldi að lokum 1/0 sigri.

Undanúrslitaleikurinn var gegn Ásdísi Rafnar, GR. Þar lék Heiðrún áfram öruggan hring undir pari, fékk m.a. örn á áttundu holu, og sigraði leikinn 6/5.

Við óskum Heiðrúnu og öðrum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn.
Hér má sjá úrslit höggleiksins
Hér má sjá úrslit allra leikja í holukeppninni
Íslandsmeistarar í holukeppni í kvennaflokki frá upphafi:
Alls hafa 20 leikmenn sigrað í kvennaflokki á Íslandsmótinu í holukeppni frá árinu 1988 þegar mótið fór fyrst fram.
Ragnhildur Sigurðardóttir hefur sigrað oftast eða 6 sinnum alls (1990, 1993, 1997, 2000, 2001 og 2005), Ólöf María Jónsdóttirer með 5 titla alls (1995, 1996, 1998, 1999 og 2004), Karen Sævarsdóttir er með 4 titla alls. (1988,1991, 1992 og 1994). Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur sigrað þrívegis (2011, 2013 og 2020). Fjórir leikmenn hafa sigrað tvívegis: Þórdís Geirsdóttir (1989 og 2007), Signý Arnórsdóttir (2009 og 2012), Guðrún Brá Björgvinsdóttir (2017 og 2021) og Saga Traustadóttir (2019 og 2022). Saga er sú eina sem hefur skilað þessum titli til tveggja golfklúbba, en hún var Í GR árið 2019 en hún hefur verið í GKG undanfarin ár.
Ár | Nafn | Klúbbur | Fjöldi titla |
1988 | Karen Sævarsdóttir | GS | 1 |
1989 | Þórdís Geirsdóttir | GK | 1 |
1990 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 1 |
1991 | Karen Sævarsdóttir | GS | 2 |
1992 | Karen Sævarsdóttir | GS | 3 |
1993 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 2 |
1994 | Karen Sævarsdóttir | GS | 4 |
1995 | Ólöf María Jónsdóttir | GK | 1 |
1996 | Ólöf María Jónsdóttir | GK | 2 |
1997 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 3 |
1998 | Ólöf María Jónsdóttir | GK | 3 |
1999 | Ólöf María Jónsdóttir | GK | 4 |
2000 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 4 |
2001 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 5 |
2002 | Herborg Arnarsdóttir | GR | 1 |
2003 | Helga Rut Svanbergsdóttir | GM (GKj) | 1 |
2004 | Ólöf María Jónsdóttir | GK | 5 |
2005 | Ragnhildur Sigurðardóttir | GR | 5 |
2006 | Anna Lísa Jóhannsdóttir | GR | 1 |
2007 | Þórdís Geirsdóttir | GK | 1 |
2008 | Ásta Birna Magnúsdóttir | GK | 1 |
2009 | Signý Arnórsdóttir | GK | 1 |
2010 | Valdís Þóra Jónsdóttir | GL | 1 |
2011 | Ólafía Þórunn Kristinsdóttir | GR | 1 |
2012 | Signý Arnórsdóttir | GK | 2 |
2013 | Ólafía Þórunn Kristinsdóttir | GR | 2 |
2014 | Tinna Jóhannsdóttir | GK | 1 |
2015 | Heiða Guðnadóttir | GM | 2 |
2016 | Berglind Björnsdóttir | GR | 1 |
2017 | Guðrún Brá Björgvinsdóttir | GK | 1 |
2018 | Ragnhildur Kristinsdóttir | GR | 1 |
2019 | Saga Traustadóttir | GR | 1 |
2020 | ÓIafía Þórunn Kristinsdóttir | GR | 3 |
2021 | Guðrún Brá Björgvinsdóttir | GK | 2 |
2022 | Saga Traustadóttir | GKG | 2 |
2023 | Perla Sól Sigurbrandsdóttir | GR | 1 |
2024 | Anna Júlía Ólafsdóttir | GKG | 1 |
2025 | Heiðrún Anna Hlynsdóttir | GOS | 1 |