Þrír íslenskir kylfingar eru á meðal þátttakenda í Vierumäki Finnish Challenge mótinu
sem fer fram á Cooke Course vellinum í Finnlandi dagana 14.-17. ágúst.
Mótið er hluti af Challenge Tour atvinnumótaröðinni sem er sú næst sterkasta í Evrópu.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, Haraldur Franklín Magnús, GR og Nick Carlson, GM, eru allir á meðal keppenda.
Haraldur Franklín hefur farið frábærlega af stað í mótinu og er jafn í 25. sæti eftir fyrstu tvo hringina. Hann hefur fengið ellefu fugla á fyrstu 36 holunum og er á fimm höggum undir pari í heildina. Með spilamennsku sinni heldur Haraldur áfram góðu gengi sínu á mótaröðinni, en hann varð jafn í 14. sæti á Irish Challenge mótinu í síðustu viku. Það er besti árangur tímabilsins hingað til hjá Haraldi, sem vill eflaust gera enn betur í Finnlandi um helgina.

Nick Carlson, GM, er einnig á meðal keppenda mótsins. Hann er jafn í 36. sæti á fjórum höggum undir pari eftir fyrstu tvo hringina, höggi á eftir Haraldi. Nick er með fullan þátttökurétt á mótaröðinni og situr í 33. sæti stigalistans fyrir mót vikunnar.


Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, var einnig á meðal keppenda en komst ekki í gegnum niðurskurð. Hann lék hringi sína á 71-74 höggum og var einn yfir pari í heildina, þremur höggum frá niðurskurðarlínunni.
