GSÍ fjölskyldan
Haraldur Franklín
Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús úr Golfklúbbi Reykjavíkur tók í þessari viku þátt í sínu fjórða móti í röð á HotelPlanner mótaröðinni í Suður-Afríku en mót vikunnar fór fram á Durban CC golfvellinum í Durban. 

Haraldur lék fyrsta hringinn á 74 höggum og lék annan hringinn í dag á 68 höggum, samtals á tveimur höggum undir pari og var einungis einu höggi frá því að komast áfram í gegnum niðurskurðinn. 

Nick Carlson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar lék báða hringina á 71 höggi og var líkt og Haraldur einu höggi frá því að komast áfram í gegnum niðurskurðinn. Þeir enduðu mótið jafnir í 69. sæti en þeir kylfingar sem eru á meðal 60 efstu halda leik áfram.

Staðan í mótinu

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ