GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Gunnlaugur Árni Sveinsson, kylfingur GKG, tekur þátt í lokaúrtökumóti fyrir Opna breska meistaramótið á morgun, þriðjudaginn 1. júlí, á Royal Cinque Ports vellinum í Kent, Englandi. Gunnlaugur hefur leik af 10. teig klukkan 08:10 að staðartíma (07:10 að íslenskum tíma).

72 kylfingar leika um 5 laus sæti í risamótinu. Á meðal keppenda eru m.a. feðgarnir Ian og Luke Poulter og risamótsmeistarinn Graeme McDowell.

Lokaúrtökumót Opna breska er síðasta stigið í átt að þátttöku í einu af fjórum risamótum golfsins. Þar leika kylfingar 36 holur á einum degi, og aðeins þeir efstu tryggja sér sæti í mótinu sjálfu. Lokaúrtökumótin fara fram á fjórum stöðum á sama tíma, en hvert þeirra gefur fimm sæti í mótið.

Gunnlaugur lék síðast í Opna breska áhugamannamótinu í júní, en annar af hringjum mótsins var leikinn á Royal Cinque Ports. Hann lék hringinn á 75 höggum, þremur yfir pari, í krefjandi aðstæðum. Hann þekkir því völlinn og svæðið vel, og getur nýtt sér það í mótinu.

Síðasti hringur Gunnlaugs á vellinum

Í holli með Gunnlaugi verða tveir öflugir kylfingar:

  • David Puig: Spánverji fæddur 2001. Hætti í háskóla og fór beint inn á LIV mótaröðina, þar sem hann hefur leikið síðustu árin. Puig hefur leikið frábærlega á tímabilinu og er talinn líklegur til að blanda sér í baráttuna um eitt af lausu sætunum.
  • Sam Smitherman: Heimamaður. Yfirþjálfarinn í Royal Cinque Ports. Ætti að vera hægt að læra eitthvað af honum á hringjunum tveimur!

Gunnlaugur Árni hefur verið frábær á háskólamótum í Bandaríkjunum undanfarið ár og fær nú tækifæri til að komast á sitt fyrsta risamót. Gunnlaugur lék einnig í lokaúrtökumóti U.S. Open í maí. Það mátti engu muna að hann kæmist inn í það skiptið, en Gunnlaugur mætir reynslunni ríkari á Royal Cinque Ports á morgun.

Hér má fylgjast með skori mótsins

Áfram Gulli!

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ