GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Gunnlaugur nýtur mikilla vinsælda í Bandaríkjunum
Auglýsing

Landsliðskylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson er á meðal keppenda á einu sterkasta háskólamóti ársins, Augusta Haskins Award Invitational, sem fer fram um helgina í Augusta í Georgíu í Bandaríkjunum.

Leiknar eru 54 holur á tveimur keppnisdögum, en sigurvegari mótsins vinnur sér inn þátttökurétt í 3M móti PGA-mótaraðarinnar sem fer fram í júlí. Fyrrum sigurvegarar háskólamótsins eru m.a. Phil Mickelson, Dustin Johnson og Justin Leonard.

Mótið er haldið á Forest Hills Golf Club vellinum og er eitt af þeim virtustu í bandaríska háskólagolfinu, þar sem mörg af bestu liðum landsins taka þátt. Á meðal þátttakenda eru lið á borð við LSU, Oklahoma State, Illinois, North Carolina og Georgia, sem öll eru í fremstu röð. LSU-liðið, sem Gunnlaugur Árni leikur með, er í fjórða sæti bandaríska styrkleikalistans.

Gunnlaugur Árni Sveinsson

Gunnlaugur Árni hefur verið lykilmaður LSU-liðsins á tímabilinu. Hann er með 69,61 högg að meðaltali, sem er það lægsta í liðinu, og hefur þegar unnið mót á keppnistímabilinu.

Augusta Haskins Award Invitational er haldið í sömu borg og Masters mótið, og fá keppendur meðal annars tækifæri til að fylgjast með æfingahring fyrir risamótið að keppni lokinni.

Hægt er að fylgjast með stöðu mótsins hér, en Gunnlaugur hefur leik kl. 12:30 að íslenskum tíma.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ