GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Gunnlaugur Árni
Auglýsing

Fyrsta háskólamót Gunnlaugs Árna Sveinssonar á þessu ári hefst á morgun á Sawgrass CC vellinum í Ponte Vedra Beach í Flórída. The Hayt háskólamótið er eitt allra sterkasta mót ársins þar sem mörg af sterkustu liðum bandaríska háskólagolfsins mætast. Mótið er 54 holu höggleikur og stendur yfir í þrjá daga. 

Staðan í mótinu

Skóli Gunnlaugs Árna, LSU, er þessa stundina í 6. sæti á lista yfir þau háskólalið sem hafa náð bestum árangri á þessu skólaári. Á meðal þátttökuliða í mótinu er Virginia sem situr í efsta sæti og Auburn sem vermir 2. sætið. Þar að auki eru Texas Tech í 11. sæti, Alabama í 15. sæti, North Carolina í 17. sæti, Duke í 20. sæti og Charlotte í 21. sæti. Auk þeirra eru á meðal þátttakenda Clemson, Coastal Carolina, Liberty, Louisville, South Carolina, UCF, South Florida og gestgjafarnir í North Florida.

Á meðal þátttakenda í mótinu eru tveir bestu áhugakylfingar heims samkvæmt heimslista áhugakylfinga, þeir Jackson Koivun og Benjamin James. Jackson hefur unnið bæði háskólamót sín það sem af er þessu ári og Benjamin hefur verið á meðal þriggja efstu kylfingana í öllum mótunum sínum á þessu skólaári. Þeir léku samtals á átta mótum á PGA mótaröðinni á síðasta ári en Jackson náði þeim magnaða árangri að enda þrisvar á meðal sex efstu kylfinganna. 

Gunnlaugur á rástíma á morgun kl. 14:00 á íslenskum tíma og mun leika með Jackson Koivun í ráshóp sem er langefstur á heimslistanum og hefur nú þegar tryggt sér þátttökurétt á PGA mótaröðinni.

Gunnlaugur Árni gerði sér lítið fyrir og sigraði síðasta háskólamótið á síðasta ári. Mótið var líkt og The Hayt gífurlega sterkt en sex af tuttugu sterkustu skólum landsins mættu til leiks. Enginn íslenskur kylfingur hefur sigrað í jafn sterku áhugamannamóti frá upphafi.

Gunnlaugur situr í dag í 8. sæti á heimslista áhugakylfinga og var á dögunum að skrifa undir samning við eina stærstu umboðsmannaskrifstofu heims. Það verður gaman að fylgjast með Gunnlaugi næstu þrjá daga.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ