GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Gunnlaugur Árni
Auglýsing

Gunnlaugur Árni Sveinsson hafnaði í 13. sæti á sínu fyrsta háskólamóti á þessu ári sem lauk í dag á Sawgrass CC vellinum í Ponte Vedra Beach í Flórída. The Hayt háskólamótið er eitt allra sterkasta mót ársins þar sem mörg af sterkustu liðum bandaríska háskólagolfsins mættust. 

Gunnlaugur Árni lék hringina þrjá á 67-74-69 höggum og var í heildina á sex höggum undir pari. Hann var í 2. sæti eftir fyrsta hring og var á tímabili í forystu á öðrum hring. Fyrir utan einn slæman fjögurra holu kafla á öðrum hring var spilamennskan frábær en það var aðeins einn kylfingur í mótinu sem fékk fleiri fugla en Gunnlaugur Árni. 

Lokastaðan í mótinu

Langbesti áhugakylfingur heims samkvæmt heimslista áhugakylfinga, Jackson Koivun, sigraði mótið á ellefu höggum undir pari og var fimm höggum á undan Gunnlaugi Árna. Þeir léku í sama ráshóp fyrstu tvo keppnisdagana en Jackson hefur nú unnið öll þrjú háskólamótin sín á þessu ári. 

Skóli Gunnlaugs Árna, LSU, hafnaði í fjórða sæti í liðakeppninni. Auburn skólinn bar sigur úr býtum á 28 höggum undir pari og var fimm höggum á undan LSU. 

Lokastaðan í liðakeppninni

Næsta mót Gunnlaugs Árna hefst eftir viku rétt hjá Los Angeles í Kaliforníu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ