Íslenski landsliðskylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson lauk leik í fjórtánda sæti á einu sterkasta háskólamóti ársins, Augusta Haskins Award Invitational, sem fór fram um helgina í Augusta í Georgíu í Bandaríkjunum.
Leiknar voru 54 holur á Forest Hills Golf Club vellinum og vann sigurvegari mótsins sér inn þátttökurétt í 3M móti PGA-mótaraðarinnar sem fer fram í júlí. Á meðal þátttakenda voru lið á borð við LSU, Oklahoma State, Illinois, North Carolina og Georgia, sem öll eru í fremstu röð. LSU-liðið, sem Gunnlaugur Árni leikur með, er í fjórða sæti bandaríska styrkleikalistans.
Gunnlaugur lék mótið á níu höggum undir pari í heildina og varð sem fyrr segir jafn í fjórtánda sæti mótsins, sex höggum á eftir efsta manni.
Íslendingurinn efnilegi lék hringi mótsins á 68-69-70 höggum og var á meðal efri kylfinga frá upphafi. Hann fékk þrettán fugla og fjóra skolla sem dreifðust jafnt yfir hringina þrjá.

Lið Gunnlaugs í LSU hafnaði í fjórða sæti liðakeppninnar á 32 höggum undir pari. Okkar maður lék best allra í liðinu, og heldur meðalskori sínu undir 70 höggum fyrir tímabilið.

Næsta verkefni Gunnlaugs og LSU er The Ford Collegiate mótið sem fer fram dagana 13.-14. apríl. Það er jafnframt síðasta mót tímabilsins fyrir úrslitakeppnina í bandaríska háskólagolfinu, þar sem Gunnlaugur og félagar stefna langt.
