GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslensku atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Haraldur Franklín Magnús eru bæði á meðal keppenda í NTT Data Pro-Am mótinu sem fer fram í Suður-Afríku á næstu dögum.

Mótið er bæði hluti af Hotelplanner mótaröðinni, sem Haraldur leikur á, og Sunshine Ladies mótaröðinni. Þar mun Guðrún leika næstu vikurnar.

Í nýlegri færslu Guðrúnar á Facebook fer hún yfir dagskrá næstu vikna.

„Ég ferðaðist í dag til Suður-Afríku, þar sem ég mun dvelja fram til 20. mars. Á þessum tíma keppi ég á fjórum mótum á Sunshine Túrnum og mun nýta þau sem mikilvægan undirbúning fyrir LET-mótin sem hefjast hér í Suður-Afríku í apríl.

Janúar heima á Íslandi var algjörlega frábær – gott að fá tíma til að hlaða batteríin fyrir komandi tímabil. Nú er ég hins vegar rosalega spennt að komast á gras og að byrja að keppa aftur.“

Guðrún Brá

Þetta verður fyrsta mót Guðrúnar á árinu, en að þessum fjórum mótum loknum mun hún leika á LET mótaröðinni í sumar. Íslandsmeistarinn lék sig inn á mótaröðina eftir frábæran árangur í úrtökumóti í desember.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins hjá Guðrúnu

Haraldur er að leika þriðju vikuna í röð í Suður-Afríku. Hann náði ekki í gegnum niðurskurð í fyrsta móti tímabilsins en lék flott golf í síðustu viku og endaði jafn í 39. sætinu. Haraldur situr í 57. sæti stigalistans fyrir mót vikunnar.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins hjá Haraldi

Mótin fara fram á Fancourt svæðinu, sem er af mörgum talið það allra besta í landinu. Leikið verður á tveimur völlum á þremur keppnisdögum á Sunshine Ladies mótaröðinni um helgina, en þremur völlum á fjórum keppnisdögum karlamegin.

Fancourt Golf svæðið

Haraldur hefur leik kl. 11:24 að staðartíma og er í holli með Spánverjanum Victor Pastor aðra vikuna í röð. Enn hafa rástímar ekki verið birtir fyrir Guðrúnu.

Haraldur lék frábært golf við hlið Victor Pastor í síðustu viku

Bæði Guðrún og Haraldur hafa verið dugleg að deila upplifunum með fylgjendum sínum á Instagram og hvetjum við alla til að fylgja þeim þar.

Instagram – Guðrún

Instagram – Haraldur

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ