GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Guðrún lék frábært golf í dag - mynd/Fannar
Auglýsing

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur og ríkjandi Íslandsmeistari í golfi, er jöfn í efsta sæti eftir fyrsta hring lokaúrtökumótsins fyrir LET (Ladies European Tour) mótaröðina. Mótið fer fram dagana 17.-20. desember á tveimur völlum; Royal Golf Marrakech og Al Maaden Golf Marrakech í Marokkó. Efstu tuttugu kylfingar mótsins vinna sér inn fullan þátttökurétt á næsta tímabili LET.

Hér má sjá stöðu mótsins

Guðrún lék fyrsta hringinn á Al Maaden vellinum, líkt og hinir íslensku kylfingarnir. Hún kom í hús á fimm höggum undir pari, og er jöfn sex öðrum kylfingum í efsta sætinu.

Guðrún fékk sjö fugla á hringnum og var ein í efsta sæti mótsins fyrir átjándu holu dagsins. Tvöfaldur skolli á síðustu holunni raunin, en hringurinn frábær engu að síður.

Fyrsti hringur Guðrúnar

Ragnhildur Kristinsdóttir, Andrea Bergsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir eru allar á meðal keppenda mótsins, og léku fyrsta hringinn í dag á Al Maaden.

Al Maaden völlurinn

Ragnhildur lék á pari vallarins og er jöfn í 67. sæti mótsins eftir daginn. Hún fékk fimm fugla og fimm skolla á hringnum.

Fyrsti hringur Röggu

Andrea er jöfn í 92. sæti mótsins. Hún lék hringinn á einu höggi yfir pari, fékk tvo fugla og þrjá skolla.

Fyrsti hringur Andreu

Hulda Clara lék á fjórum höggum yfir pari og er jöfn í 130. sætinu. Hulda fékk fugl á bæði fyrstu og átjándu holuna, en fékk fjóra skolla og einn tvöfaldan skolla.

Fyrsti hringur Huldu

Alls eru 155 kylfingar frá 40 þjóðum skráðir til leiks í lokamótinu.

Til mikils er að vinna, en LET mótaröðin er sú sterkasta í Evrópu, og sú næst sterkasta í heimi.

Efstu 20 kylfingar mótsins fá fullan þátttökurétt á LET fyrir tímabilið 2026.
Kylfingarnir í sætum 21-50 fá skilyrtan þátttökurétt á LET fyrir tímabilið 2026.
Allir aðrir kylfingar sem náðu inn í lokamótið fá takmarkaðan þátttökurétt á LET fyrir tímabilið 2026.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ