Site icon Golfsamband Íslands

Guðrún Brá hefur leik kl. 11:50 á lokamóti LET Evrópumótaraðarinnar á Spáni

Guðrún Brá Björgvinsdóttir í Sádí Arabíu 2020. Mynd/Tristan Jones.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir er á meðal keppenda á lokamóti LET Evrópumótaraðarinnar, en mótið heitir Andalucia Costa del Sol Open.

Keppni hefst fimmtudaginn 26. nóvember og eru leiknar 72 holur á fjórum keppnisdögum. 

Guðrún Brá hefur leik kl. 11:50 að íslenskum tíma eða 12:50 að staðartíma á Spáni.

Skor keppenda er uppfært hér:

Guðrún Brá er í 125. sæti á styrkleikalista LET Evrópumótaröðinni og fór hún upp um rúmlega 20 sæti í síðustu viku. 

Íslandsmeistari síðustu þriggja ára náði sínum besta árangri á LET Evrópumótaröðinni á síðara mótinu sem fram fór í Sádí-Arabíu. Þar endaði hún í 39. sæti.  

Mótið fer fram á Real Club de Guadalmina vellinum sem er rétt við Gíbraltar og Malaga. 

Það er að miklu að keppa fyrir kylfinga á lokamótinu. Heildarverðlaunafé mótsins er 600 þúsund Evrur eða rétt um 100 milljónir kr. 

Nánar um mótið hér:

Exit mobile version