Guðrún Brá Björgvinsdóttir hefur leikið frábært golf síðustu daga á Platinum Ladies Open mótinu í Suður-Afríku. Að tveimur hringjum loknum situr ríkjandi Íslandsmeistarinn í sjötta sæti mótsins á níu höggum undir pari.
Guðrún lék fyrsta hringinn á 69 höggum, þremur undir pari vallarins. Hún fékk þar þrjá fugla og tapaði ekki höggi. Sláttur Guðrúnar hefur reynst henni dýrmætur í mótinu, en tölfræði mótaraðarinnar segir hana hafa slegið gífurlega vel. Samkvæmt Guðrúnu sjálfri hitti hún þó ekki allar brautir vallarins báða dagana líkt og tölfræði hennar gefur til kynna.

Í dag lék Guðrún á 66 höggum, sex undir pari. Frábær hringur, en einungis tveir kylfingar léku á lægra skori en Guðrún í dag. Hún fékk sjö fugla og einn skolla á þessum magnaða hring og kom sér upp í sjötta sæti mótsins fyrir lokahringinn.

Þetta er fjórða og síðasta mót Guðrúnar á Sunshine mótaröðinni í ár, en hún hefur leikið gott golf í Suður-Afríku. Hún hafnaði í 3.sæti í fyrsta móti tímabilsins og í 23.sæti í því næsta. Guðrún náði ekki í gegnum niðurskurð í síðustu viku.
Andrea Bergsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir eru einnig á meðal keppenda mótsins en náðu ekki að klára hring dagsins sökum veðurs. Andrea er sem stendur á þremur höggum yfir pari eftir 10 holur á öðrum hring og Hulda Clara á einu höggi undir pari eftir sex holur. Þær munu að öllum líkindum hefja leik aftur á morgun.

