GSÍ eflir sjálfbærnistefnu með nýju samstarfi við GEO Foundation
Líkt og kemur fram í nýjustu sjálfbærniskýrslu GSÍ hefur markvisst verið unnið að því að samræma sjálfbærnistefnu og skýrslugjöf hreyfingarinnar við þá evrópsku. Mikilvægur liður í þeirri vegferð er innleiðing OnCourse-hugbúnaðarins, sem er hannaður sérstaklega fyrir golfklúbba af GEO Foundation. Kerfið mun taka við af Klapparkerfinu sem hefur verið í prófun undanfarin ár.
Með samstarfinu við GEO Foundation og innleiðingu OnCourse bindur GSÍ vonir við að styðja enn betur við íslenska golfklúbba í sjálfbærnivinnu sinni. Lausnin er jafnt hugsuð fyrir klúbba sem eru langt komnir í umhverfis- og samfélagsmálum og jafnvel hafa þegar hlotið GEO-vottun (Golf Environment Organization Certified), sem og fyrir þá klúbba sem eru að stíga sín fyrstu skref á sviði sjálfbærni.
Vinnustofa fyrir golfklúbba 6. mars
Til að kynna samstarfið og nýja kerfið mun GSÍ standa fyrir vinnustofu fyrir áhugasama klúbba föstudaginn 6. mars kl. 14:00–16:00 í Íþróttamiðstöð ÍSÍ í Laugardal.
Á vinnustofunni munu Jonathan Smith og Kelli Jerome frá GEO Foundation kynna samstarfið og OnCourse-kerfið. Þá munu fulltrúar GSÍ fjalla um áherslur sambandsins í sjálfbærnimálum og næstu skref í innleiðingu kerfisins.
Einnig mun Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri Keilis, kynna reynslu klúbbsins á að vinna með GEO vottun og tækifærin því tengt.
Klúbbar hvattir til þátttöku í vinnustofu GSÍ
GSÍ hvetur golfklúbba um land allt til að senda framkvæmdastjóra, starfsfólk af velli og skrifstofu sem og stjórnarfólk á vinnustofuna. Um er að ræða mikilvægt tækifæri til að afla sér upplýsinga, miðla reynslu og taka þátt í lifandi og uppbyggilegum umræðum um framtíð sjálfbærni innan golfhreyfingarinnar.
Smelltu hér til að skrá þig á vinnustofuna
Frekari upplýsingar veitir:
Brynjar Eldon framkvæmdastjóri GSÍ
