Golfsamband Íslands (GSÍ) leitar að aðstoðarafreksstjóra til starfa frá 1. apríl 2026.
Verkefni aðstoðarafreksstjóra eru á sviði afrekssviðs GSÍ og snúa að landsliðum Íslands, afreksstarfi unglinga og stuðningi við leikmenn í eða á leið í atvinnumennsku.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Vinna að framþróun afreksstarfs GSÍ
- Samstarf við golfklúbba um þróun afreksmála
- Þróa og fylgja eftir afreksstefnu GSÍ
- Samstarf við afrekskylfinga um heildstæða þróun leikmanna
Hæfniskröfur
- Alþjóðleg reynsla af afreksgolfi
- Reynsla af þjálfun afrekskylfinga
- Vilji og dugnaður til að þróa afreksgolf á Íslandi
- Góðir samskiptahæfileikar
- Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð
Umsókn, ásamt ferilskrá, þarf að berast til GSÍ eigi síðar en 1. mars 2026 og skulu þær sendar á neðangreint netfang:
Upplýsingar um starfið veitir:
Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri
brynjar@golf.is
