Stór hópur íslenskra afrekskylfinga er á meðal keppenda á Sand Valley Masters mótinu sem fer fram í Póllandi dagana 13.-15. apríl. Mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu og er þetta annað mót hópsins í landinu. Íslensku kylfingarnir eru:
- Aron Snær Júlíusson, GKG
- Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
- Daníel Ísak Steinarsson, GK
- Hlynur Bergsson, GKG
- Logi Sigurðsson, GS
- Sigurður Arnar Garðarsson, GKG
- Skúli Gunnar Ágústsson, GKG
Leikið er á ný á Sand Valley Golf Resort svæðinu í norðurhluta Póllands, en þó á öðrum velli en í síðustu viku. Í fyrra móti hópsins voru þeir Logi Sigurðsson og Sigurður Arnar þeir einu sem komust í gegnum niðurskurð. Báðir léku þeir gott golf í mótinu og enduðu jafnir í áttunda sætinu.

Daníel Ísak lék best allra íslensku kylfinganna í dag og kom í hús á 67 höggum, þremur höggum undir pari. Daníel fékk fjóra fugla og einn skolla á hringnum, en hann er jafn í 10. sæti mótsins.
Hlynur Bergsson er höggi á eftir Daníel og kom í hús á 68 höggum. Hann fékk fimm fugla, þrjá skolla og er jafn í 17. sætinu.
Dagbjartur lék hringinn einnig undir pari og lauk leik á 69 höggum. Íslandsmeistarinn er jafn í 33. sæti mótsins, en efstu 50 kylfingarnir ná í gegnum niðurskurð eftir hring morgundagsins.
Stöðu allra íslensku kylfinganna má sjá hér að neðan.
| Sæti | Skor | Kylfingur | Klúbbur |
| T10 | 67 (-3) | Daníel Ísak Steinarsson | GK |
| T17 | 68 (-2) | Hlynur Bergsson | GKG |
| T33 | 69 (-1) | Dagbjartur Sigurbrandsson | GR |
| T68 | 71 (+1) | Aron Snær Júlíusson | GKG |
| T90 | 72 (+2) | Sigurður Arnar Garðarsson | GKG |
| T126 | 74 (+4) | Logi Sigurðsson | GS |
| T140 | 75 (+5) | Skúli Gunnar Ágústsson | GKG |
Hér má fylgjast með stöðu mótsins
Efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabils vinna sér inn fullan þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu. Einnig er hægt að vinna sér inn þátttökurétt með því að vinna þrjú mót á sama tímabilinu. Haraldur Franklín Magnús leikur á HotelPlanner Tour, en sú mótaröð hefst aftur í maí.
