Auglýsing

Ingi Þór Hermannsson, fyrrum formaður Golfklúbbsins Odds, fékk á dögunum viðurkenningu á íþróttahátíð Garðabæjar fyrir störf sín fyrir Golfklúbbinn Odd. Athöfnin fór fram þann 10. janúar s.l. þar sem að veittar voru viðurkenningar fyrir framlag til félagsmála í Garðabæ. Þetta kemur fram á heimasíðu GO.

Björg Fenger formaður Íþrótta og tómstundaráðs Garðabæjar veitti viðurkenningar ásamt Gunnari Einarssyni bæjarstjóra en hátíðin var send út í vefútsendingu vegna fjöldatakmarkana. Hægt er að skoða upptöku frá útsendingunni hér fyrir neðan.

Ingi Þór Hermannsson var formaður Golfklúbbsins Odds frá árinu 2009 til ársins 2016 eða í alls 7 starfsár af þeim 27 sem Golfklúbburinn Oddur hefur starfað og lengur en nokkur annar formaður til þessa.

Ingi Þór leiddi miklar umbreytingar í klúbbnum í formannstíð sinni þar sem áherslan var lögð á að bæta rekstur klúbbsins og breyta ímynd og ásýnd hans. Er ekki annað hægt að segja en að honum hafi tekist frábærlega upp.

Í formannstíð Inga var lagður grunnur að þeirri framtíðarsýn sem unnið hefur verið eftir síðan. Sá þáttur í starfi klúbbsins sem félagsmenn í GO standa í mestri þakkarskuld við er efling félagsandans og áherslan á Golfklúbbinn Odd sem íþróttafélag.

Þessi öflugi félagsandi endurspeglaðist á lokaári Inga Þórs sem formanns þegar hann leiddi móttöku á um 200 erlendum keppendum og fylgdarfólki á Evrópumóti kvennalandsliða.

Ingi Þór var sæmdur Gullmerki GO árið 2018 þó hann sé hvergi nærri hættur að vinna fyrir klúbbinn og er ávallt boðinn og búinn að aðstoða þegar á þarf að halda.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ