GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Fyrstu umferð Landsmótsins í golfhermum 2026 er lokið og ljóst hvaða kylfingar eru komnir áfram í næstu umferð. Mikill fjöldi þátttakenda var skráður í mótið í ár, en 268 kylfingar hófu leik.

Efstu 48 karlarnir og efstu 24 konurnar komust áfram í næstu umferð mótsins, sem fer fram dagana 17. mars – 27. apríl. Þar leika bestu kylfingar fyrstu umferðarinnar 36 holur á sama velli, og halda tólf bestu karlarnir og tólf bestu konurnar áfram í úrslitakeppnina.

Í karlaflokki var það Aron Snær Júlíusson sem lék best. Hann spilaði Korpúlfsstaðavöll á tíu höggum undir pari, einu höggi betur en klúbbfélagi hans úr GKG, Hjalti Hlíðberg Jónasson.

Hér að neðan má sjá sjö efstu karlkylfingana úr fyrstu undankeppninni.

Bestu skor karla í fyrstu undankeppninni

Hér má sjá úrslit fyrstu umferðar karlaflokksins

Ríkandi Landsmeistari kvenna í golfhermum, Ragnhildur Kristinsdóttir, lék best allra í kvennaflokknum. Hún lauk leik á níu höggum undir pari, fékk níu fugla, örn og tvo skolla. Frábær hringur hjá Ragnhildi sem lék tveimur höggum betur en ríkjandi stigameistari GSÍ mótaraðarinnar, Heiðrún Anna Hlynsdóttir.

Bestu skor kvenna í fyrstu undankeppninni

Hér má sjá úrslit fyrstu umferðar kvennaflokksins

Úrslitakeppnin fer fram laugardaginn 2. maí í Íþróttamiðstöð GKG. Leiknar eru þar 36 holur til úrslita um titilinn Landsmeistari í golfhermum.

Mótið hefur heppnast afar vel síðustu ár og verður sýnt frá úrslitakeppninni í beinni útsendingu, bæði á miðlum GSÍ og í sjónvarpi.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ