Auglýsing

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, hefur efnt til nýrra verðlauna sem nefnast Íslensku lýðheilsuverðlaunin. Verðlaunin eru afhent í samstarfi við heilbrigðisráðuneyti, Embætti landlæknis, ÍSÍ og Geðhjálp.

Þau verða afhent í fyrsta sinn í vor og skiptast í tvo flokka annars vegar verðlaun til einstaklings og hins vegar verðlaun til samtaka, stofnunar eða fyrirtækis sem hefur látið gott af sér leiða á þessu sviði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍSÍ.

Óskað er eftir tillögum frá almenningi um það hver ætti að hljóta þessa viðurkenningu fyrir framlag til eflingar lýðheilsu á Íslandi. Senda skal inn tillögur að verðugum verðlaunahöfum, ásamt rökstuðningi, á vefsíðunni lydheilsuverdlaun.is, fyrir 20. mars nk.

Dómnefnd mun fjalla um tillögurnar og tilnefna þrjár í hvorum flokki.

Tvenn verðlaun verða svo afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í seinni hluta aprílmánaðar.

Verðlaunum er ætlað að draga athygli að mikilsverðu framlagi á sviði lýðheilsu og auka með þeim hætti áhuga á bættri heilsu og líðan almennings. Lýðheilsustarf byggir á samvinnu um að bæta heilbrigði þjóðarinnar, líðan og lífsgæði í samfélaginu. Litið er jafnt til líkamlegrar og andlegrar heilsu.

ÍSÍ hvetur almenning til að taka þátt í verkefninu og senda inn tilnefningar. Form til að fylla út og senda má finna hér.

Verðlaunum er ætlað að draga athygli að mikilsverðu framlagi á sviði lýðheilsu og auka með þeim hætti áhuga á bættri heilsu og líðan almennings.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ