GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Dagbjartur Sigurbrandsson, kylfingur GR og Missouri háskólans, tryggði sér í nótt sæti á lokastigi úrtökumótsins fyrir U.S. Open eftir góðan árangur í undankeppni.

Undankeppnin fór fram á Gateway National Golf Links vellinum í Illinois þar sem 120 kylfingar kepptu um sex laus sæti.

Dagbjartur hóf leik snemma morguns og lék á 69 höggum, tveimur undir pari, en þurfti að bíða langt fram eftir degi þar til úrslit lágu fyrir. Í lok dags endaði hann í bráðabana gegn fjórum öðrum kylfingum – þar sem aðeins tvö laus sæti voru í boði. Bráðabaninn reyndist æsispennandi og fór fram seint um kvöldið, nánast í myrkri, en Dagbjartur stóð sig frábærlega og tryggði sér farseðilinn áfram eftir þriggja holu leik.

Næsta skref hjá Dagbjarti verður því 36 holu lokamót sem fram fer annað hvort 19. maí eða 2. júní, þar sem hann freistar þess að komast inn á sjálft U.S. Open, sem fram fer á Oakmont Country Club um miðjan júní.

Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur þegar tryggt sér sæti á lokastiginu þar sem hann er meðal 50 efstu áhugakylfinga heims. Þeir félagarnir stefna báðir á að komast inn á risamótið og verður gaman að fylgjast með þeim elta drauminn.

Aðrir íslenskir kylfingar sem tóku þátt í fyrsta stigi í apríl voru Andri Þór Björnsson og Tómas Eiríksson Hjaltested, en þeim tókst ekki að komast áfram þrátt fyrir flotta hringi.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ