GSÍ fjölskyldan
Dagbjartur
Auglýsing

Dagbjartur Sigurbrandsson, kylfingur GR, tekur þátt í lokaúrtökumóti fyrir U.S. Open á morgun, mánudaginn 2. júní, á Kinsale Golf & Fitness Club vellinum í Columbus, Ohio. Í holli með Dagbjarti er þrefaldi risamótsmeistarinn Padraig Harrington og Svíinn Alex Noren, sem er með 10 sigra á Evrópumótaröðinni. Dagbjartur fer af stað klukkan 7:40 að staðartíma (11:40 að íslenskum tíma). 67 kylfingar munu berjast um nokkur laus sæti, en undankeppnin í Columbus er þekkt fyrir að vera ein sú allra erfiðasta. Ástæðan fyrir því er að Memorial mótið á PGA mótaröðinni sem lýkur í kvöld er einnig haldið í Ohio. Margir kylfingar sem eru ekki með þátttökurétt á U.S. Open nýta sér stutta ferðalagið og mæta beint í úrtökumótið. Ljóst er að samkeppnin verður hörð.

Lokaúrtökumót U.S. Open er síðasta stigið í átt þátttöku í einu af fjórum risamótum golfsins. Þar leika kylfingar 36 holur á einum degi, og aðeins þeir efstu tryggja sér sæti á sjálfu U.S. Open mótinu. Gunnlaugur Árni Sveinsson lék í einu af lokaúrtökumótunum þann 19. maí og var ekki langt frá því að ná alla leið.

Dagbjartur tryggði sér sæti í lokaúrtökumótinu eftir frábæra spilamennsku í undankeppni í Illinois. Þar léku 120 kylfingar um sex laus sæti í lokaúrtökumótinu, og komst Dagbjartur inn eftir fimm manna bráðabana, þar sem tvö sæti voru laus.

Ráshópur Dagbjarts á fyrsta keppnisdegi er ekki af verri endanum:

Padraig Harrington er einn af fremstu kylfingum Írlands og hefur unnið þrjá risatitla: Opna breska árin 2007 og 2008, og PGA meistaramótið árið 2008. Hann var best í 3. sæti heimslistans og varði yfir 300 vikum í efstu 10 sætum listans. Hann hefur alls unnið 21 mót á alþjóðlegum vettvangi og var tekinn inn í World Golf Hall of Fame árið 2024. Á síðari árum hefur Harrington náð góðum árangri á PGA Tour Champions, þar sem hann vann meðal annars U.S. Senior Open árið 2022.

Alex Noren er sænskur atvinnukylfingur sem hefur unnið 10 mót á Evrópumótaröðinni, þar á meðal BMW PGA Championship og Scottish Open. Hann hefur einnig verið hluti af sigurliði Evrópu í Ryder Cup árið 2018.

Eftir að hafa glímt við meiðsli snemma árs 2025 sneri Noren aftur af krafti og var í baráttu um sigur á PGA meistaramótinu í maí, aðeins þremur höggum á eftir fyrir lokahringinn.

Margir þekktir kylfingar taka þátt í lokaúrtökumótinu í Ohio. Meðal þeirra eru:

  • Matt Kuchar
  • Rickie Fowler
  • Max Homa
  • Cameron Young
  • Padraig Harrington
  • Alex Noren
  • Thomas Lehman

Golfsambandið náði á Dagbjarti fyrr í vikunni og spurði hann nokkurra spurninga.

Þú komst í gegnum síðasta úrtökumót eftir þriggja holu bráðabana – hvernig undirbýr maður sig fyrir slíka spennu og heldur þú að sú reynsla hafi mögulega búið þig enn betur undir mótið í Ohio?

Já klárlega góður undirbúningur fyrir næsta mót í Ohio. Ég kláraði hringinn snemma um 2 leitið og var að bíða eftir bráðabananum sem byrjaði ekki fyrr en 19:30 og við kláruðum um hálf níu. Það var orðið mikið myrkur og maður sá lítið. Það var gaman að sjá boltann fara ofan í á 3 holu. Annars höfðum við þurft að koma aftur um morgun til að klára. Ég lendi í svipuði fyrir ári síðan og beið eftir bráðabana svo ég vissi hvað ég var að fara út í . Auðvelt er að detta í hugsanir um hvað maður hefði getað gert öðruvísi, en það breytir engu. Best er að læra og halda áfram. Fékk mér góðan hádegismat í St. Louis og náði að restarta mentally.

Maður lærir mikið á sjálfan sig hverning líkaminn og hugurinn bregðast undir pressu. Það er mikilvægt að vera með góða næringu, drekka nóg af vatni og síðan fókusa á öndunina í svona slíkri spennu með jákvætt sjálfstal og einbeita sér eitt högg í einu.

Úrtökumótið í Columbus er þekkt fyrir að vera eitt það erfiðasta – hvernig ert þú að nálgast undirbúninginn til að mæta, og sigra, þessu stóru nöfn í golfheiminum?

Já það er virkilega gaman að sjá nafnið mitt við hliðina á mörgum af þessum frábæru leikmönnum. Maður hefur lengi dreymt um að keppa við þá síðan maður var yngri, svo það er virkilega spennandi að fá tækifæri til þess núna.

Hef átt góðan undirbúning fyrir mótið og Gunnlaugur Árni kom til Missorui að æfa og spila í nokkra daga.

Síðan er ég mest að fókusa á hlutina sem ég hef stjórn á, vera jákvæður og hafa gaman út á velli.

Hvaða styrkleika í þínum leik telur þú að geti gefið þér forskot á þessum velli, og hvað er mikilvægt að hafa í huga til að skora vel?

Það er alltaf best á vera á brautinni og hitta sem flest grín sem mun hjálpa við skora vel. Hef verið að vinna að bæta driverinn og æfa vel í kringum gríninn sem hefur gengið vel og hef verið að rúlla honum vel á grínunum. Innáhögginn verða mikilvæg. Það skiptir miklu máli að vera þolinmóður á 36 holu dögunum og vera með góða næringu út á velli. Svona langir dagar taka vel á andlegu hliðina og er spenntur fyrir þeirri áskorun.

Hér má fylgjast með skori mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ