GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Efri röð frá vinstri: Skarphéðinn Egill Þórisson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Arnar Daði Svavarsson, Björn Breki Halldórsson, Elva María Jónsdóttir, Embla Hrönn Hallsdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir, Sara María Guðmundsdóttir, Eva Fanney Matthíasdóttir, Erna Steina Eysteinsdóttir, Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, Axel Bóasson Neðri röð frá vinstri: Kristján Karl Guðjónsson, Halldór Jóhannsson, Máni Freyr Vigfússon, Óliver Elí Björnsson, Arnar Freyr Viðarsson, Hjalti Kristján Hjaltason, Ágúst Már Þorvaldsson, Markús Marelsson, Gunnar Þór Heimisson. Á myndina vantar Birki Þór Baldursson
Auglýsing

Landsliðshópur GSÍ hefur undanfarna daga tekið þátt í tveimur mótum á Global Junior mótaröðinni í Portúgal. Seinna mótið fór fram á Royal Óbidos golfvellinum rétt norðan við Lissabon. 

Líkt og í fyrra mótinu voru afar krefjandi vallar- og veðuraðstæður sem settu mikinn svip sinn á mótið. Þátttakendur voru alls 88 og komu frá 17 löndum. Bryndís Eva Ágústsdóttir náði besta árangri í stúlknaflokki er hún hafnaði í 3. sæti. Bryndís lék á 80-73-79 höggum og var á sextán höggum yfir pari í heildina. Hjalti Kristján Hjaltason náði besta árangri í piltaflokki en hann lék á 81-80-72 höggum, var samtals á sautján höggum yfir pari og hafnaði í 4. sæti. 

Úrslit mótsins

Hópurinn heldur til Íslands á morgun. Næsta keppnisferð landsliðskylfinganna fer einnig fram í Portúgal í lok mars.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ