GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Bein útsending verður frá Íslandsmótinu í golfi sem fram fer á Hvaleyrarvelli Golfklúbbsins Keilis dagana 7.-10. ágúst.

Sýnt verður frá síðustu þremur keppnisdögunum á RÚV.

Útsendingin verður á eftirtöldum tímum:

Föstudagur 8. ágúst – 15:30 – 18:30
Laugardagur 9. ágúst – 15:00 – 17:45
Sunnudagur 10. ágúst – 15:00 til mótsloka    

Mikið er lagt í útsendinguna frá Íslandsmótinu í golfi, sem hefur aldrei verið veglegri. Þúsundir metra af myndavélaköplum verða dregnir út á völlinn til að koma myndefninu til skila heim í stofu. 

Um 30 manns koma að útsendingunni með einum eða öðrum hætti og verða yfir 30 myndavélar á vellinum.

KPMG og RÚV vinna í sameiningu að birtingu á tölfræði frá mótinu, sem sýnd verður í útsendingu RÚV. Áhorfendur munu því geta fengið enn betri innsýn í spilamennsku okkar bestu kylfinga.

Grafík Stöðutafla Íslandsmótsins 2024

Það verður því hægt að fylgjast vel með spennunni á Hvaleyrarvelli næstu daga, ekki missa af höggi.

Saga útsendinga

Þetta er í 28. sinn sem sýnt er frá Íslandsmótinu í golfi í beinni útsendingu í sjónvarpi. Fyrsta útsendingin var árið 1998 á Hólmsvelli í Leiru. 

Þetta verður í fjórtánda skiptið sem RÚV er með þessa útsendingu en fyrstu 13 árin var sýnt frá mótinu á SÝN og einu sinni var sýnt frá mótinu á Stöð 2 sport. 

Samkvæmt bestu heimildum GSÍ er Íslandsmótið í golfi eina meistaramót áhugakylfinga sem sýnt er í beinni útsendingu á landsvísu. Útsendingin er því einsdæmi á heimsvísu. 

Sýnt hefur verið beint frá Íslandsmótinu í golfi í sjónvarpi frá eftirtöldum mótum:

1998 (1) – Hólmsvöllur / GS (SÝN)
1999 (2) – Hvaleyrarvöllur / GK (SÝN)
2000 (3) – Jaðarsvöllur / GA (SÝN)
2001 (4) – Grafarholt / GR (SÝN)
2002 (5) – Strandarvöllur / GHR (SÝN)
2003 (6) – Vestmannaeyjar / GV (SÝN)
2004 (7) – Garðavöllur / GL (SÝN)
2005 (8) – Hólmsvöllur / GS (SÝN)
2006 (9) – Urriðavöllur / GO (SÝN)
2007 (10) – Hvaleyrarvöllur / GK (SÝN)
2008 (11) – Vestmannaeyjar / GV (SÝN)
2009 (12) – Grafarholt / GR (SÝN)
2010 (13) – Kiðjaberg / GKB (SÝN)
2011 (14) – Hólmsvöllur / GS (RÚV)
2012 (15) – Strandarvöllur / GHR Stöð 2 sport
2013 (16) – Korpúlfsstaðavöllur / GR (RÚV)
2014 (17) – Leirdalsvöllur / GKG (RÚV)
2015 (18) – Garðavöllur / GL (RÚV)
2016 (19) – Jaðarsvöllur / GA (RÚV)
2017 (20) – Hvaleyrarvöllur / GK (RÚV)
2018 (21) – Vestmannaeyjavöllur / GV (RÚV)
2019 (22) – Grafarholtsvöllur / GR (RÚV)
2020 (23) – Hlíðavöllur / GM (RÚV)
2021 (24) – Jaðarsvöllur / GA (RÚV)
2022 (25) – Vestmannaeyjavöllur / GS (RÚV)
2023 (26) – Urriðavöllur / GO (RÚV
2024 (27) – Hólmsvöllur í Leiru / GS (RÚV)
2025 (28) – Hvaleyrarvöllur / GK (RÚV)

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ