Andrea Bergsdóttir situr í efsta sæti Santander Golf Tour mótsins sem fram fer á Naturavila golfvellinum á Spáni. Mótið er hluti af LET Access mótaröðinni, sem er næststerkasta atvinnumótaröð Evrópu.
Andrea er efst í mótinu eftir tvo hringi, á 7 höggum undir pari. Hún lék fyrsta hring mótsins á 68 höggum og lauk leik á 69 höggum í dag. Þetta er fimmta mót Andreu á LET Access mótaröðinni á þessu tímabili, en hún hefur best endað í 23. sæti.
Aðspurð segist Andrea vera ánægð með spilamennskuna og þær breytingar sem hún hefur verið að leggja áherslu á.
„Spilamennskan hefur verið nokkuð góð að undanförnu. Stöðug í heildina en hef ekki verið að slá boltann eins vel og ég er vön upp á síðkastið. Í þessari viku hefur allt smollið saman og mér líður vel á vellinum, sem er mjög gaman. Hef líka verið að vinna mikið í andlegu hliðinni og það hefur hjálpað mér mikið. Ég næ að láta mér líða vel í högginu, er að gera lítið af mistökum og er að koma mér í góð færi.“
Markmið hennar eru skýr.
„Já, markmið morgundagsins er að vinna. Gera það sem ég hef gert síðustu tvo daga og vona að það sé nóg. Það hefði verið gaman að vinna snemma tímabils og komast upp stigalistann, sem væri gott skref í langtímamarkmiðinu um að ná 7. sæti á stigalistanum þegar árið er búið og fá fulla stöðu á LET á næsta ári.“
Í lok tímabils fá efstu 7 kylfingarnir á stigalista LET Access mótaraðarinnar fá fullan þátttökurétt á LET mótaröðina á næsta tímabili. Kylfingarnir í 8.-32. sæti komast beint í lokaúrtökumótið og eiga bæði möguleika á fullum og skilyrtum þáttökurétt í mótaröðinni.
Ragnhildur Kristinsdóttir er einnig á meðal þátttakenda og er í góðum málum fyrir lokahringinn. Hún lék fyrsta hringinn á 69 höggum og lauk leik á 74 höggum á öðrum hring. Hún er jöfn í 19. sæti fyrir lokahringinn þar sem hún gæti unnið sér inn dýrmæt stig á stigalistanum.
Alls eru 108 kylfingar skráðir til leiks í mótinu og aðeins þeir 45 efstu komast í gegnum niðurskurðinn. Á meðal keppenda eru 14 fyrrverandi sigurvegarar á LET Access mótaröðinni, sem segir sitt um styrkleika mótsins.
Andrea og Ragnhildur hafa báðar verið duglegar að taka þátt í mótum á tímabilinu. Ragnhildur situr í 35. sæti stigalistans fyrir mótið en Andrea í því 55. Miðað við spilamennsku vikunnar gera þær sig báðar líklegar til að koma sér fyrir enn ofar á listanum.
Lokahringurinn fer fram í dag og má búast við hörku keppni.