GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba í aldursflokkum 18 ára og yngri fór fram á Strandarvelli á Hellu dagana 25.-27.júní.

Sex sveitir mættu til leiks í mótið og leikin var heil umferð. Öll liðin mættu hvort öðru einu sinni, þar sem liðið með flesta vinninga stóð uppi sem Íslandsmeistari golfklúbba.

Golfklúbburinn Keilir sigraði mótið með fullt hús stiga. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar endaði í öðru sætinu með 3.5 vinninga af 5 mögulegum. Golfklúbbur Akureyrar hafnaði í 3. sæti með 3 vinninga.

Sveit Keilis lék frábærlega í mótinu og fengu 13 innbyrðis sigra af 15 mögulegum. Lið þeirra samanstóð af:

  • Markús Marelsson
  • Hjalti Jóhannsson
  • Víkingur Óli Eyjólfsson
  • Viktor Tumi Valdimarsson
  • Birgir Páll Jónsson
  • Liðsstjóri: Axel Bóasson

Piltar – 18 ára og yngri:

Úrslit mótsins
Sveit Keilis

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í holukeppninni:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ