GSÍ mótaröðin er efsta stig mótahalds á Íslandi. Öll mót á mótaröðinni telja til stigalista GSÍ mótaraðarinnar með mismikið vægi, en stigameistarar karla og kvenna eru krýndir í lok tímabils. GSÍ mótaröðin er opin öllum en þátttakendafjöldi í mótunum er breytilegur, lágmarksforgjöf í almenn stigamót er 4,5 í karlaflokki og 8,5 í kvennaflokki. Áhersla er lögð á að mótin á GSÍ mótaröðinni skarist sem minnst við sterk alþjóðleg áhugamannamót sem eykur líkurnar á því að okkar bestu áhugakylfingar geti tekið þátt í stærstu mótunum hérlendis.
Á GSÍ mótaröðinni 2026 eru sjö mót. Þar eru þrjú almenn mót, Hvaleyrarbikarinn, Íslandsmótið í holukeppni, Korpubikarinn og Íslandsmótið í golfi.
Íslandsmótið í holukeppni fer fram á tveimur völlum í ár. Kvennaflokkurinn leikur á Urriðavelli GO og karlaflokkurinn á Hólmsvelli GS. Bæði mótin fara fram á sama tíma, dagana 19.-21. júní.
Íslandsmótið í golfi fer fram á Korpúlfsstaðavelli Golfklúbbs Reykjavíkur dagana 6.-9. ágúst. Mótið verður það síðasta á mótaröðinni í sumar, og verða stigameistarar krýndir að því loknu.
| Dags. | Mán. | Mótaskrá 2026 | Klúbbur | Flokkur. | |
|---|---|---|---|---|---|
| 15.-17. | Maí | GSÍ mótaröðin (1) | GS/GSG | GSÍmótaröðin | |
| 23.-24. | Maí | Unglingamótaröðin (1) | Án vallar | Unglingamótaröðin | |
| 29.-31. | Maí | GSÍ mótaröðin – Korpubikarinn (2) | GR | GSÍmótaröðin | |
| 30.-31. | Maí | Unglingamótaröðin (2) | GM | Unglingamótaröðin | |
| 30.-31. | Maí | Golf 14 (1) | NK | Golf14 | |
| 6.-7. | Júní | GSÍ mótaröðin (3) | GÞ | GSÍmótaröðin | |
| 4.-6. | Júní | Unglingamótaröðin – Nettó mótið (3) | GKG | Unglingamótaröðin | |
| 5.-6. | Júní | Golf 14 – Nettó mótið (2) | GKG | Golf14 | |
| 9.-10. | Júní | Golf 14 – Golfhátíð | GF | Golf14 | |
| 18-20. | Júní | Íslandsmót golfklúbba – stúlkur – drengir – U12 | GK, GR, GM | Íslandsmót golfklúbba | |
| 19.-21. | Júní | Íslandsmót í holukeppni karla – GSÍ mótaröðin (4) | GS | GSÍmótaröðin | |
| 19.-21. | Júní | Íslandsmót í holukeppni kvenna – GSÍ mótaröðin (4) | GO | GSÍmótaröðin | |
| 24.-26. | Júní | Íslandsmót golfklúbba stúlkur U18 – drengir U16 – U18 | GL | Íslandsmót golfklúbba | |
| 24.-26. | Júní | Íslandsmót golfklúbba Stúlkur U14 – Drengir U14 | GF | Íslandsmót golfklúbba | |
| 28.-11. | Júlí | Meistaramót golfklúbba | Allir | Önnur mót | |
| 14. | Júlí | Golf 14 – Bakkakotsmótið | GM | Golf14 | |
| 16.-18. | Júlí | Íslandsmót 50+ | GKB | Önnur mót | |
| 17.-19 | Júlí | GSÍ mótaröðin – Hvaleyrarbikarinn (5) | GK | GSÍmótaröðin | |
| 17.-19. | Júlí | Unglingamótaröðin (4) | GA | Unglingamótaröðin | |
| 18.-19. | Júlí | Golf 14 (3) | GA | Golf14 | |
| 23.-25. | Júlí | Unglingamótaröðin (5)- Íslandsmót í holukeppni | GOS | Unglingamótaröðin | |
| 23.-25. | Júlí | Golf 14 (4) Íslandsmót í holukeppni | GOS | Golf14 | |
| 23.-25. | Júlí | GSÍ mótaröðin (6) | GKG | GSÍmótaröðin | |
| 6.-9. | Ágúst | Íslandsmótið í golfi – GSÍ mótaröðin (7) | GR | GSÍmótaröðin | |
| 13.-15. | Ágúst | Íslandsmót golfklúbba – 1. deild karla | GHR | Íslandsmót golfklúbba | |
| 13.-15. | Ágúst | Íslandsmót golfklúbba – 1. deild kvenna | GM | Íslandsmót golfklúbba | |
| 13.-15. | Ágúst | Íslandsmót golfklúbba – 2. deild kvenna | GHH | Íslandsmót golfklúbba | |
| 13.-15. | Ágúst | Íslandsmót golfklúbba – 3. deild karla | GH | Íslandsmót golfklúbba | |
| 13.-15. | Ágúst | Íslandsmót golfklúbba – 4. deild karla | GD | Íslandsmót golfklúbba | |
| 13.-15. | Ágúst | Íslandsmót golfklúbba – 5. deild karla | GVS | Íslandsmót golfklúbba | |
| 16.-18. | Ágúst | Íslandsmót golfklúbba – 2. deild karla | GV | Íslandsmót golfklúbba | |
| 20.-22. | Ágúst | Íslandsmót golfklúbba – 50+ 1. deild kvenna | GS | Íslandsmót golfklúbba | |
| 20.-22. | Ágúst | Íslandsmót golfklúbba – 50+ 2. deild kvenna | GVG | Íslandsmót golfklúbba | |
| 20.-22. | Ágúst | Íslandsmót golfklúbba – 50+ 1. deild karla | GÖ | Íslandsmót golfklúbba | |
| 20.-22. | Ágúst | Íslandsmót golfklúbba – 50+ 2. deild karla | GSG | Íslandsmót golfklúbba | |
| 20.-22. | Ágúst | Íslandsmót golfklúbba – 50+ 3. deild karla | GHG | Íslandsmót golfklúbba | |
| 20.-22. | Ágúst | Íslandsmót golfklúbba – 50+ 4. deild karla | GHD | Íslandsmót golfklúbba | |
| 20.-22. | Ágúst | Unglingamótaröðin – Íslandsmót í höggleik (6) | GK | Unglingamótaröðin | |
| 20.-22. | Ágúst | Golf 14 – Íslandsmót í höggleik (5) | GÞ | Golf14 | |
| 5.-6. | September | Unglingamótaröðin (7) – Lokamót | GR | Unglingamótaröðin | |
| 5.-6. | September | Golf14 (6) – Lokamót | GO | Golf14 |
Birt með fyrirvara um breytingar
Tölfræði úr Íslandsmótinu í golfi
Ráðgjafar KPMG hafa greint fyrirliggjandi gögn um Íslandsmótið í golfi allt frá árinu 2001 og sett ýmsar áhugaverðar upplýsingar fram í mælaborði.
Um er að ræða mikið magn af gögnum sem sett eru fram með einföldum hætti og veita því innsýn í fjölmarga þætti í leik kylfinga í gegnum tíðina. Hvaða holur hafa reynst erfiðastar á Íslandsmótum? Hverjir náðu besta skori að meðaltali? Hér gefst tækifæri til að fá innsýn inn í golfið frá tölfræðilegri hlið.