Golfsamband Íslands

Unglingamótaröðin 2021 – Perla Sól stigameistari í flokki 15-16 ára

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, stigameistari í flokki 15-16 ára. Mynd/seth@golf.is

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, er stigameistari 2021 á unglingamótaröð GSÍ í flokki 15-16 ára stúlkna. Perla Sól sigraði á öllum fimm mótum tímabilsins og varð Íslandsmeistari í holukeppni og höggleik.

Berglind Erla Baldursdóttir, GM, varð önnur á stigalistanum. Hún lék á öllum fimm mótum tímabilsins og varð einu sinni í öðru sæti og fjórum sinnum í þriðja sæti.

Sara Kristinsdóttir, GM, lék á öllum fimm mótum tímabilsins. Hún varð þrívegis í öðru sæti og einu sinni í fjórða sæti.

Alls tóku 20 keppendur þátt í þessum aldursflokki á tímabilinu.

Stigalisti 15-16 ára stúlkur:

Berglind Erla Baldursdóttir, GM, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR og Sara Kristinsdóttir, GM. Mynd/seth@golf.is.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR. Mynd/seth@golf.is
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR. Mynd/seth@golf.is
Exit mobile version