Golfsamband Íslands

Þórður Rafn á -9 samtals og er í 9. sæti fyrir lokahringinn á ProGolf mótaröðinni

Þórður Rafn Gissurarson, GR

Þórður Rafn Gissurarson er enn með í baráttunni um efstu sætin á Sparkassen Open atvinnumótinu á ProGolf mótaröðinni. Þórður Rafn lék á 68 höggum í dag eða -4 og er hann samtals á -9 eftir fyrstu tvo keppnisdagana af alls þremur. GR-ingurinn er í 9. sæti fyrir lokahringinn en Frakkinn Kenny Subregis er efstur á -13 samtals.

Staðan í mótinu:

 

Screen Shot 2016-07-15 at 9.49.03 PM

Exit mobile version