Site icon Golfsamband Íslands

„Það er gaman í golfi“ – Opið fyrir skráningu á Nettó / Áskorendamótið hjá GKG

Opið er fyrir skráningu á annað mót tímabilsins á Áskorendamótaröðinni en Nettómótið hjá GKG fer fram í Mýrinni þann 10. júní.

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is seinasta lagi 8. júní fyrir kl. 12:00. Engar skráningar eru leyfðar eftir að skráningarfresti lýkur, jafnvel þó laus sæti séu í mótið.

Afskráning skal berast tímanlega á netfang golfklúbbsins sem heldur mótið (gkg@gkg.is).

Leikfyrirkomulag mótaraðarinnar er eftir alþjóðlegri fyrirmynd mótaraðar fyrir ungra kylfinga. Þessi mótaröð er hugsuð sem fyrstu skref og stuðningur við keppnisþátttöku ungra kylfinga. Markmiðið er að hafa gaman og aðaláherslan lögð á að læra leikinn og mismunandi leikform hans. Þjálfarar, liðstjórar og foreldrar eru hvattir til þess að taka virkan þátt í að gera þessi mót sem skemmtilegust fyrir þátttakendur með leiðbeinandi og jákvæðu hugarfari í kringum mótin. 

Helstu atriði sem lagt verður upp með:

Keppt verður í eftirfarandi aldursflokkum bæði hjá stelpum og strákum:

10 ára og yngri

9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar

Teigar 34 (bláir)

12 ára og yngri

9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar

Teigar 34 (bláir)

14 ára og yngri 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar teigar 41 (appelsínugulir)

15-18 ára 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar teigar 47 kk (grænir) og teigar 41 (appelsínugulir) kvk

Skráning

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is seinasta lagi 8. júní fyrir kl. 12:00. Engar skráningar eru leyfðar eftir að skráningarfresti lýkur, jafnvel þó laus sæti séu í mótið. Afskráning skal berast tímanlega á netfang golfklúbbsins sem heldur mótið (gkg@gkg.is).

Þátttökugjald

2.000,- kr.

Rástímar og ráshópar

Rástímar verða kynntir fyrir mótið en ræst er út frá kl. 9:00 á mótsdegi. Forráðamenn eru beðnir um að fylgjast með tölvupósti og með mótinu í GolfBox.

Æfingahringur

Einn æfingahringur er innfalinn í mótsgjaldi en keppnisvöllurinn verður opinn fyrir æfingahring fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi áður en mótið hefst. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til þess að panta rástíma. Athugið að greiða þarf þátttökugjald áður en æfingahringur er leikinn.

Verðlaun og verðlaunaafhending

Allir keppendur mótsins fá viðurkenningarskjal að leik loknum en einnig verða aukaverðlaun veitt fyrir 1. – 3. sæti í báðum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast verðlaun jafnt á milli þeirra keppenda.Verðlaunaafhending fer fram um leið og leik lýkur í hverjum flokki.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Exit mobile version