Auglýsing

Fyrsta stigamót ársins á stigamótaröð GSÍ 2022 fer fram á Garðavelli hjá Golfklúbbnum Leyni dagana 20.-22. maí.

Mótið heitir B59 Hotel mótið og er Leynir á Akranesi framkvæmdaraðili mótsins.

Nú þegar hafa rúmlega 60 keppendur skráð sig til leiks. Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is fyrir klukkan 23:59 þriðjudaginn 17. maí 2022.

Á meðal þeirra sem hafa skráð sig til leiks má nefna Aron Snæ Júlíusson, GKG, sem er ríkjandi Íslandsmeistari í golfi. Axel Bóasson, GK, sem sigraði á móti á Nordic Tour atvinnumótaröðinni er skráður til leiks – en Axel er þrefaldur Íslandsmeistari í golf (2011, 2017 og 2018). Kristján Þór Einarsson, Íslandsmeistari frá árinu 2008, er einnig skráður en hann keppir fyrir GM. Alls eru 46 keppendur skráðir til leiks í karlaflokki.

Í kvennaflokki eru margir landsliðskylfingar skráðir til leiks – og má þar nefna Heiðrúnu Önnu Hlynsdóttur, GOS, og Perlu Sól Sigurbrandsdóttur, GR. Alls eru 17 konur skráðar til leiks.

Garðavöllur var opnaður í byrjun maí og kemur völlurinn mjög vel undan vetri.

Keppt er í höggleik og er fyrsti keppnisdagurinn föstudagurinn 20. maí og verða alls leiknar 54 holur á þremur keppnisdögum, 18 holur á föstudegi, 18 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi. Ræst verður út alla dagana frá kl. 8:00.

Niðurskurður verður eftir annan hring en þá komast áfram 70% af fjölda keppenda úr hvorum flokki.

Hámarksfjöldi kylfinga í mótið er 144. og þátttökurétt hafa bæði áhugamenn og atvinnumenn. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5 og skulu keppendur vera meðlimir í viðurkenndum golfklúbbi.

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is fyrir klukkan 23:59 þriðjudaginn 17. maí 2022.

**Engar undantekningar á skráningu verða leyfðar í mótið eftir að skráningu lýkur.**

Smelltu hér til að skrá þig:

Keppnisskilmálar.

Alls eru sex mót á dagskrá í sumar sem eru hluti af stigamótaröð GSÍ.

Golfsamband Íslands er framkvæmdaraðili á Íslandsmóta á stigamótaröð GSÍ.

Íslandsmótið í holukeppni fer fram í júní hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar, og Íslandsmótið í golfi fer fram á Vestmannaeyjavelli í byrjun ágúst.

Leirumótið hjá Golfklúbbi Suðurnesja fer fram í byrjun júní, Keilir verður með Hvaleyrarbikarinn í júlí og Korpubikarinn fer fram hjá Golfklúbbi Reykjavíkur í ágúst. Klúbbarnir sem halda þessi mót eru framkvæmdaraðilar en mótin telja á stigalista GSÍ.

Myndasyrpa frá mótinu árið 2021 er hér fyrir neðan:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ