Site icon Golfsamband Íslands

Minningarpúttmót Harðar Barðdal í Hraunkoti 18. júní

Hörður Barðdal.

Púttmót fer fram í Hraunkoti þann 18. júní og hefst það kl. 18:00.

Mótið er minningarmót um Hörð Barðdal sem var frumkvöðull í því að auka þátttöku fatlaðra í íþróttum. Hörður var einn af stofnendum Golfsamtaka fatlaðra á Íslandi. Hann lést langt um aldur fram árið 2009. Árið 1977 var Hörður valinn íþróttamaður ársins hjá íþróttasambandi fatlaðra og var hann sá fyrsti sem fékk þann titil.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í flokki fatlaðra og ófatlaðra. Sigurvegarinn í flokki fatlaðra fær veglegan farandbikar í verðlaun.

 

Exit mobile version