Golfsamband Íslands

Landsliðshópar GSÍ og atvinnukylfingar æfa við góðar aðstæður á Hacienda Del Alamo

Landsliðshópar GSÍ og atvinnukylfingar frá Íslandi hafa á undanförnum dögum æft við góðar aðstæður á Hacienda Del Alamo golfsvæðinu á Spáni.

Golfsambandið gerði samning á síðasta ári þess efnis að æfingabækistöð íslenska landsliðsins yrði á Hacienda Del Alamo – og er þetta í fyrsta sinn sem slíkur samningur er gerður á vegum GSÍ.

Markmið samstarfsins er að veita íslenskum landsliðs- og atvinnukylfingum hagkvæm og spennandi tækifæri að æfa að vetrarlagi við frábærar aðstæður. Landsliðs- og atvinnukylfingar hafa þess kost að halda á svæðið á eigin vegum til viðbótar við skipulagðar æfingarferðir – og eru 10 atvinnukylfingar með í fyrstu æfingaferð GSÍ á þetta svæði.

Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri GSÍ, stjórnar æfingum hópsins en þjálfarar frá þremur klúbbum eru til aðstoðar á æfingunum. Þeir eru Derrick Moore, GR, Heiðar Davíð Bragason, GA og Dagur Ebenezersson, GM. Arnar Már Ólafsson, GKG, forfallaðist vegna veikinda og komst ekki með í ferðina. Baldur Gunnbjörnsson er sjúkraþjálfari hópsins og Sigurður Elvar Þórólfsson, útbreiðslustjóri GSÍ fylgir hópnum.

Alls eru 48 í hópnum þar af 42 leikmenn. Þrátt fyrir að hópurinn sé stór þá fer vel um kylfingana á rúmgóðu æfingasvæði Hacienda Del Alamo. Á æfingunum geta íslensku kylfingarnir slegið af grasi á æfingasvæðinu, æfingavippflötin er stór líkt og púttæfingaflötin. Það er einnig 6 holu æfingavöllur á æfingasvæðinu. Hópurinn hefur æft sameiginlega fyrir hádegi alla daga ferðarinnar og eftir hádegi fara leikmenn út á golfvöll til að spila. Hópurinn hefur aðgengi að þremur 18 holu golfvöllum, Hacienda Del Alamao, Saurines og Mar Menor. Í þessari ferð er leikið á Hacienda Del Alamao og Saurines.

Eins og áður segir eru eru tíu atvinnukylfingar við æfingar með hópnum.
Þeir eru: Aron Snær Júlíusson (GKG), Bjarki Pétursson (GKG), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GKG) og Sigurður Arnar Garðarsson (GKG). Andri Þór Björnsson (GR), Haraldur Franklín Magnús (GR), Hákon Örn Magnússon (GR), Ragnhildur Kristinsdóttir (GR). Axel Bóasson (GK) og Guðrún Brá Björgvinsdóttir (GK).

Landsliðshópurinn sem er við æfingar á Hacienda Del Alamo er þannig skipaður:

Arnar Daði Svavarsson (GKG)
Guðjón Frans Halldórsson (GKG)
Gunnlaugur Árni Sveinsson (GKG)
Gunnar Þór Heimisson (GKG)
Karen Lind Stefánsdóttir (GKG)
Kristófer Orri Þórðarson (GKG)
Saga Traustadóttir (GKG)
Snorri Hjaltason (GKG)

Auður Bergrún Snorradóttir (GM)
Berglind Erla Baldursdóttir (GM)
Eva Kristinsdóttir (GM)
Katrín Sól Davíðsdóttir (GM)
Kristján Þór Einarsson (GM)
Kristófer Karl Karlsson (GM)
María Eir Guðjónsdóttir (GM)
Pamela Ósk Hjaltadóttir (GM)
Sara Kristinsdóttir (GM)
Sverrir Haraldsson (GM)

Daníel Ísak Steinarsson (GK)
Hjalti Jóhannsson (GK)
Markús Marelsson (GK)

Böðvar Bragi Pálsson (GR)
​​Elías Ágúst Andrason (GR)
Helga Signý Pálsdóttir (GR)
Jóhannes Guðmundsson (GR)
Nína Margrét Valtýsdóttir (GR)
Perla Sól Sigurbrandsdóttir (GR)

Bjarni Þór Lúðvíksson (NK)

Fjóla Margrét Viðarsdóttir (GS)

Skúli Gunnar Ágústsson (GA)
Veigar Heiðarsson (GA)

Exit mobile version