Golfsamband Íslands

Haraldur Franklín hefur leik kl. 09:53 á Carnoustie – með hverjum er hann í ráshóp?

Haraldur Franklín Magnús hefur leik á fimmtudaginn 19. júlí kl. 09:53 á Opna breska meistaramótinu sem fram fer á Carnoustie í Skotlandi.

Haraldur Franklín verður þar með fyrsti íslenski karlkylfingurinn til að leika á einu af risamótunum fjórum.

GR-ingurinn verður í ráshóp James Robinson frá Englandi og Zander Lombard frá Suður-Afríku fyrstu tvo keppnisdagana.

Alla rástíma á fyrsta hring má nálgast hér: 

Exit mobile version