Golfsamband Íslands

Gunnar Ingi ráðinn framkvæmdastjóri GM

Hlíðavöllur í Mosfellsbæ.

Gunnar Ingi Björnsson framkvæmdastjóri GM.
Gunnar Ingi Björnsson framkvæmdastjóri GM.

Golfklúbbur Mosfellsbæjar (GM) varð til við sameiningu Golfklúbbsins Kjalar og Golfklúbbs Bakkakots í desember síðastliðunum. Við sameiningu varð til fjórði stærsti klúbbur landsins með um 1150 félagsmenn og tvö vallarsvæði til umráða. Framundan eru spennandi tímar hjá klúbbnum en nýverið var undirritaður samningur við Mosfellsbæ um uppbyggingu íþróttamannvirkja á báðum vallarsvæðum klúbbsins.

Í ljósi aukinna umsvifa golfklúbbsins hefur stjórn klúbbsins unnið að framtíðarskipulagi á starfsemi hans, meðal annars til að takast á við þá uppbyggingu og sókn sem framundan er. Stjórn hefur gengið frá ráðningu Gunnars Inga Björnssonar í stöðu framkvæmdastjóra og mun hann leiða uppbyggingu klúbbsins og daglegan rekstur hans. Haukur Hafsteinsson sem starfað hefur sem framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Kjalar undanfarin ár tekur við starfi skrifstofustjóra hjá GM.

Gunnar Ingi hefur undanfarin ár verið stjórnarformaður Golfklúbbs Bakkakots. Jafnframt hefur hann sinnt þar starfi framkvæmdastjóra fyrir hönd stjórnar og stýrt daglegri starfsemi klúbbsins. Gunnar er núverandi varaformaður í stjórn GM en hefur ákveðið að stíga til hliðar við þessa ráðningu og mun stjórn tilkynna á næstu dögum um breytingar á stjórn í framhaldi af því.

Gunnar Ingi hefur unnið ötullega að sameiningu klúbbanna ásamt því að hafa starfað innan stjórnar GOB í 10 ár. Það er því mikill fengur fyrir klúbbinn að fá Gunnar til starfa þar sem hann þekkir vel til reksturs beggja vallarsvæða og þeirrar framtíðarsýnar sem stjórn klúbbsins hefur. Gunnar hefur ennfremur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og þekkir vel til í bæjarlífinu í Mosfellsbæ en hann hefur starfað til fjölda ára sem þjálfari hjá yngri flokkum Aftureldingar í handboltanum ásamt störfum sínum tengdum golfi í bæjarfélaginu.

Gunnar Ingi mun hefja störf nú þegar og býður stjórn GM Gunnar velkominn til starfa.

Exit mobile version