Site icon Golfsamband Íslands

Guðrún Brá keppir á LET Evrópumótaröðinni á Ítalíu

Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Mynd/LET

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr GK, hóf leik í dag á Golf Club Margara mótinu á Ítalíu sem er hluti af LET Evrópumótaröðinni.

Guðrún Brá er með keppnisrétt á flestum mótum á LET Evrópumótaröðinni. Hún hefur leikið á níu mótum á tímabilinu. Besti árangur hennar er 27. sæti og hún hefur komist í gegnum niðurskurðinn á sex mótum.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Guðrún Brá hefur eins og áður segir leikið á níu mótum á tímabilinu en hún hóf keppnistímabilið í Kenía um miðjan febrúar og hefur hún leikið víðsvegar um veröldina frá þeim tíma og má þar nefna Sádí-Arabíu, Ástralíu og Taílandi. Framundan eru fjölmörg mót sem fram fara í Evrópu.

Exit mobile version