Site icon Golfsamband Íslands

Guðrún Brá keppir á Amundi German Masters á LET- Evrópumótaröðinni

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr GK, keppir á Amundi German Masters mótinu sem fram fer dagana 15.-18. júní. Mótið fer fram á Seddiner See vellinum.

Mótið er hluti af LET Evrópumótaröðinni, sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í kvennaflokki í Evrópu.

Leiknar verða 72 holur á fjórum keppnisdögum og er heildarverðlaunaféð á mótinu 300 þúsund Evrur. Par vallar er 72 og er heildarlengd vallar 5.800 metrar.

Þetta er fimmta mótið á tímabilinu hjá Guðrúnu Brá á LET Evrópumótaröðinni.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit frá Amundi German Masters.

Exit mobile version