Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Mynd/Hari
Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, fer upp um 32 sæti á heimslista atvinnukylfinga í karlaflokki eftir að hafa náð sínum besta árangri á Evrópumótaröðinni um liðna helgi.

Guðmundur Ágúst endaði í 18.-23. sæti á Open de Portugal sem fram fór á Royal Obidos. m

Guðmundur Ágúst er í sæti nr. 508 á heimslistanum en hann var í sæti nr. 540 fyrir mótið. Frá ársbyrjun 2018 hefur Guðmundur Ágúst farið hratt upp heimslistann. Hann var í janúar 2018 í sæti nr. 1925. Hann hefur því farið upp um rúmlega 1400 sæti á heimslistanum á síðustu tveimur árum.

Í sögulegu samhengi þá er Guðmundur Ágúst að nálgast besta árangur kylfinga frá Ísland á heimslista atvinnukylfinga.

Birgir Leifur Hafþórsson hefur náð að komast í sæti nr. 415 á heimslistanum árið 2017 þegar hann sigraði á móti í Frakklandi á Áskorendamótaröðinni. Axel Bóasson, GK, var í sæti nr. 439 í árslok 2017, sem er enn sem komið er næst besti árangur hjá atvinnukylfingi frá Íslandi á heimslista atvinnukylfinga.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ