Golfsamband Íslands

Guðmundur Ágúst endaði í 9. sæti á Spáni

Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Mynd/seth@golf.is

Guðmundur Ágúst Kristjánsson endaði í 9. sæti á PGA Catalunya Resort Championship.

Mótið er hluti af atvinnumótaröðinni Nordic Tour en Guðmundur Ágúst fagnaði sigri á síðasta móti á þessari mótaröð.

GR-ingurinn endaði á -3 samtals (68-73-70).

Þrír aðrir íslenskir kylfingar tóku þátt á þessu móti en þeir komust ekki í gegnum niðurskurðinn.

Axel Bóasson, GK (78-67) +3
Haraldur Franklín Magnús, GR (74-74) +6
Andri Þór Björnsson, GR (73-76) +7

 

 

Exit mobile version