Golfsamband Íslands

GR Íslandsmeistari golfklúbba 18 ára og yngri í stúlknaflokki

Golfklúbbur Reykjavíkur, A-sveit, sigraði á Íslandsmóti golfklúbba í flokki stúlkna 18 ára og yngri. Úrslitin réðust á Strandarvelli í dag hjá Golfklúbbnum á Hellu.

Fjórir golfklúbbar sendu lið til keppni í þessum aldursflokki. Liðin léku í einum riðli og efsta liðið fagnaði Íslandsmeistaratitlinum.

GR sigraði í öllum þremur leikjum sínum. GKG varð í öðru sæti og GM í því þriðja.

Fleiri myndir hér:

Rástímar, höggleikur og riðlar

Heildarúrslit og staða.

Exit mobile version