Site icon Golfsamband Íslands

Golfklúbburinn Flúðir sigraði í 4. deild karla

Golfklúbburinn Flúðir sigraði í 4. deild karla á Íslandsmóti golfklúbba sem fram fór á Bárarvelli hjá Golfklúbbnum Vestarr á Grundarfirði.

Úrslitin réðust í bráðabana á 20. holu þar sem að GF tryggði sér efsta sætið eftir harða baráttu gegn heimamönnum í GVS.

Golfklúbburinn Mostri frá Stykkishólmi varð í þriðja sæti.

Exit mobile version