Íslandsmeistaralið GM: Frá vinstri. Andri Ágústsson liðsstjóri, Pamela Ósk Hjaltadóttir, Auður Bergrún Snorradóttir, Eva Kristinsdóttir, Birna Rut Snorradóttir, Heiða Rakel Rafnsdóttir, og Dagur Ebenezersson þjálfari GM. Mynd/BEG
Auglýsing

Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM, fagnaði sigri á Íslandsmóti golfklúbba í flokki 16 ára og yngri í stúlknaflokki 2022. Úrslitin réðust í dag á Strandarvelli á Hellu.

Fjögur lið tóku þátt í þessum aldursflokki í stúlknaflokki og varð lið Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar í öðru sæti. Golfklúbbur Mosfellsbæjar var með tvö lið á þessu Íslandsmóti og endaði GM-2 í þriðja sæti og GR varð í fjórða sæti.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit leikja:

Smelltu hér fyrir myndasafn frá mótinu:

Íslandsmeistaralið GM: Frá vinstri. Andri Ágústsson liðsstjóri, Pamela Ósk Hjaltadóttir, Auður Bergrún Snorradóttir, Eva Kristinsdóttir, Birna Rut Snorradóttir, Heiða Rakel Rafnsdóttir, og Dagur Ebenezersson þjálfari GM. Mynd/BEG
Lið GKG: Arnar Már Ólafsson þjálfari, Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, Katla Bríet Björgvinsdóttir, Kristín Helga Ingadóttir, María Ísey Jónasdóttir, Elísabet Ólafsdóttir og Elísabet Sunna Scheving. Mynd/BEG
Lið GM-2: Andri Ágústsson liðsstjóri, Gabríella Neema Stefánsdóttir, Ásdís Eva Bjarnadóttir, Ásdís Rún Hrafnhildardóttir, Dagbjört Erla Baldursdóttir, Ísabella Björt Þórisdóttir. María Rut Gunnlaugsdóttir og Dagur Ebenezersson þjálfari. Mynd/BEG
Íslandsmeistaralið GM: Frá vinstri. Andri Ágústsson liðsstjóri, Pamela Ósk Hjaltadóttir, Auður Bergrún Snorradóttir, Eva Kristinsdóttir, Birna Rut Snorradóttir, Heiða Rakel Rafnsdóttir, og Dagur Ebenezersson þjálfari GM. Mynd/BEG

Í stúlknaflokki voru fjögur lið sem tóku þátt. Í stúlknaflokki var keppt í einum riðli og leikin ein umferð í riðlinum.

Í holukeppninni var leikinn einn fjórmenningur og tveir tvímenningsleikir. Í fjórmenningsleikjunum eru tveir leikmenn saman í liði og leika þeir einum bolta og slá þeir upphafshöggin til skiptis. Í tvímenningnum er einn leikmaður úr hvoru liði sem keppa gegn hvorum öðrum í holukeppni.

Liðin sem tóku þátt í stúlknaflokki 16 ára og yngri eru:

GR (Golfklúbbur Reykjavíkur)
GM 1 (Golfklúbbur Mosfellsbæjar).
GM 2 (Golfklúbbur Mosfellsbæjar).
GKG (Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar).

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ